Kom alla leið frá Ástralíu fyrir leik gegn Val í kvöld
Skoska liðið St.Mirren heimsækir Val í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í kvöld. Er um að ræða fyrri leik liðanna 2.umferð undankeppninnar. Stuðningsmenn liðsins hafa sett svip sinn á mannlífið í Reykjavíkurborg. Einn þeirra á að baki lengra ferðalag en hinir. Sá heitir Colin Bright. Hann flaug hingað til lands alla leið frá Ástralíu til að mæta á leik kvöldsins á N1 vellinum að Hlíðarenda.