Stj.mál

Fréttamynd

Bæjarstjórn Bolungarvíkur klofin

Bæjarstjórn Bolungarvíkur er klofin í afstöðu sinni til vegbóta á veginum um Óshlíð. Meirihluti stjórnarinnar lagði fram bókun á fundi bæjarstjórnar í vikunni þar sem ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá því nýverið, um að hefja rannsóknarvinnu vegna jarðganga um Óshlíðarveg, er fagnað. Minnihluti bæjarstjórnar tók ekki undir þessa bókun.

Innlent
Fréttamynd

Vonbrigði yfir fjárlagafrumvarpi

Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar í ályktun sem hún sendi frá sér í dag.

Innlent
Fréttamynd

Sveitarstjóra verði sagt upp

Tillaga um að Ársæli Guðmundssyni, sveitarstjóra Skagafjarðar, verði sagt upp störfum verður lögð fram á sveitarstjórnarfundi á morgun, en það er Gísli Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar, sem ber fram tillöguna.

Innlent
Fréttamynd

Skattalækkun betri en launahækkun

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir engar forsendur fyrir því að segja upp samningum á vinnumarkaði. Hann segir kaupmátt hafa aukist um 60 prósent á tíu árum og séu skattalækkanir miklu meiri kjarabót en almennar launahækkanir.

Innlent
Fréttamynd

Vegið að hagsmunum öryrkja

Helgi Hjörvar alþingismaður segir að í nýju fjárlagafrumvarpi sé enn vegið að hagsmunum öryrkja og nú eigi að skerða bensínstyrki hreyfihamlaðra um þrjú hundruð milljónir króna. Hann kveðst furðu lostinn á því að í kjölfar svikanna á samkomulaginu við öryrkja, sem gert var skömmu fyrir kosningarnar 2003, þá skuli menn spara með því að skerða styrk til þessa hóps.

Innlent
Fréttamynd

Sameining ólíkleg á Reykjanesi

Bæjarstjóri Reykjanessbæjar segir ólíklegt að af sameiningu Reykjanessbæjar, Garðs og Sandgerðis verði, þótt hann telji það einu skynsamlegu lausnina.

Innlent
Fréttamynd

Efnahagsstjórnin brást

Efnahagsstjórn ríkisstjórnarinnar hefur brugðist og stöðugleikinn sem ríkisstjórnin hrósar sér af á lítt skylt við þann raunveruleika sem Íslendingar upplifa, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar, í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Níu sendiherrar í tíð Davíðs

Fjórtán sendiherrar hafa verið skipaðir það sem af er kjörtímabilinu, þar af níu í rúmlega eins árs utanríkisráðherratíð Davíðs Oddssonar.

Innlent
Fréttamynd

Skrifar umboðsmanni bréf

Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri þingflokks Frjálslynda flokksins, hefur ritað umboðsmanni Alþingis bréf þar sem hún fer þess á leit að hann svari spurningum sem varða brotthvarf Gunnars Arnar Örlygssonar úr Frjálslynda flokknum og yfir til Sjálfstæðisflokksins síðastliðinn vetur.

Innlent
Fréttamynd

Hægir á umsvifum 2007

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á alþingi í gærkvöldi að uppbygging stóriðju hefði öðru fremur leitt efnahagssveiflu undanfarið og að sama yrði upp á teningnum á næsta ári. En að óbreyttu væri hins vegar útlit fyrir að eftir það hægði verulega á umsvifum í efnahagslífinu.

Innlent
Fréttamynd

Stöðugleikinn í uppnámi

Þingflokkur Samfylkingarinnar dregur upp dökka mynd af efnhagsstjórn landsins í fréttatilkynningu sem send var út í tenglsum við framlagningu fjárlaga í gær. Stöðugleikinn er sagður í uppnámi, launabil að aukast auk þess sem verðbólguspár geri ráð fyrir hækkandi verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Eigum Davíð mikið að þakka

"Þjóðin á honum mikið að þakka," sagði Geir H. Haarde, utanríkisráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, um Davíð Oddsson í þingræðu í kvöld. Í ræðu sinni í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra gerði Geir upp valdatíð Davíðs og sagði Ísland öflugra og betra en nokkru sinni fyrr við endalok stjórnmálaferils hans.

Innlent
Fréttamynd

Útflutningsgreinar brunarústir

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, gagnrýndi stefnuræðu Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra harðlega og sagði að ekki örlaði á því að ríkisstjórnin tæki aðvaranir Seðlabankans og annarra sérfræðinga alvarlega. Ríkisstjórnin væri að því leyti í fullkominni afneitun.

Innlent
Fréttamynd

Enginn bensínstyrkur öryrkja

Í nýju fjárlagafrumvarpi er lagt til að spara 720 milljónir með því að fella niður bensínstyrk til örykja. Formaður Sjálfsbjargar segir vera að draga úr greiðslu til þeirra fatlaðra sem eru á vinnumarkaði, eina ferðina enn.

Innlent
Fréttamynd

Dýrkeyptur aumingjaskapur

Það er aumingjaskapur af hálfu stjórnvalda að hafa ekki hækkað lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga, segir Jóhann Ársælsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í pistli á heimasíðu sinni. Hann segir þetta hafa reynst dýrkeypt þar sem þetta hamli flutningi verkefna frá ríkinu til stórra og öflugra sveitarfélaga.</font />

Innlent
Fréttamynd

Bensínstyrkur sleginn af

720 milljóna króna bensínstyrkir til hreyfihamlaðra hafa verið slegnir af samkvæmt fjárlagafrumvarpinu sem kynnt var í gær. Þetta jafngildir átta þúsund krónum á mánuði fyrir sjö þúsund heimili í landinu.

Innlent
Fréttamynd

Afskipti lykilmanna umhugsunarverð

Valgerður Sverrisdóttir segir að lykilmenn í Sjálfstæðisflokknum hafi tengst aðdraganda Baugsmálsins. Ummæli Styrmis Gunnarssonar um skattayfirvöld hafi ekki komið á óvart því hann aðhyllist pólitísk afskipti af eftirlitsstofnunum.

Innlent
Fréttamynd

Vilja lækka vexti með lögum

Lækka á yfirdráttarvexti og dráttarvexti með lögum, segir Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingar, á heimasíðu sinni. Hún segir Seðlabanka hafa of rúmt svigrúm til að ákveða háa dráttarvexti og vill breyta lögum þannig að þetta svigrúm minnki auk þess sem hún segir að breyta ætti lögum um vexti og verðtryggingu svo yfirdráttarvextir lækki.

Innlent
Fréttamynd

Árni svarar Campbell

Árni Matthiesen, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra og núverandi fjármálaráðherra, hefur svarað frægum ummælum ástralska umhverfisráðherrans, Ian Campbells, sem spurði að því í viðtali við <em>The Daily Telegraph</em> hvort Árni væri fífl. Þetta sagði Ian í tengslum við ummæli Árna á þá leið að Ástralar ættu að leggja fram gögn um aflífunaraðferðir spendýra, eins og kengúra.

Innlent
Fréttamynd

Stjórnsýslan verði einfaldari

Stjórnsýslan verður að vera einfaldari en hún er nú og meira í takt við tímann, sagði Halldórs Ásgrímsson forsætisráðherra í stefnuræðu sinni á Alþingi rétt í þessu. Hann kynnti sérstakt átak ríkisstjórnarinnar í þessum efnum og sagði reynt að einfalda regluverkið, minnka skriffinnsku og auka skilvirkni.

Innlent
Fréttamynd

Hótar sameiningu með lögum?

Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir Árna Magnússon félagsmálaráðherra hafa hótað þeim, sem ekki samþykktu sameiningu sveitarfélaga í kosningunum nú, að sveitarfélögin verði sameinuð með lögum. Hann segir Árna nær að skoða réttlátari og sanngjarnari tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. 

Innlent
Fréttamynd

Vill álit á vistaskiptum þingmanns

Framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins hefur óskað eftir rökstuddu áliti umboðsmanns Alþingis á því hvort Gunnar Örn Örlygsson geti tekið þingsæti Frjálslynda flokksins og farið með það í Sjálfstæðisflokkinn.

Innlent
Fréttamynd

Ekki skortur á aðhaldi

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í upphafi stefnuræðu sinnar á Alþingi í gærkvöldi að ný lífskjarakönnun Sameinuðu þjóðanna sýndi að Ísland væri næstbesta landið í heiminum að búa í. Fyrir áratug hefði staðan verið önnur. Hagvöxtur væri meiri hér en í nálægum löndum og atvinnuleysi hvergi minna.

Innlent
Fréttamynd

Hvaða stöðugleiki?

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, sagði á Alþingi í gærkvöldi að smæð íslensks samfélags og návígi væri höfuðorsök fyrir þröngsýni og sundurlyndisfjanda.

Innlent
Fréttamynd

Ekki sameinuð með lögum

Árni Magnússon félagsmálaráðherra segir af og frá að hann ætli að sameina sveitarfélög með valdi hafni íbúar þeirra sameiningu í atkvæðagreiðslu um helgina. Hann vísar á bug ásökunum Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingar, um að hann sameini sveitarfélög með lögum verði þau ekki sameinuð í íbúakosningum.

Innlent
Fréttamynd

Misskilningur hjá sagnfræðingum

Sólveig Pétursdóttir, forseti Alþingis, segir að misskilnings gæti í ályktun Sagnfræðingafélags Íslands sem gagnrýndi harðlega að Þorsteini Pálssyni, sendiherra og fyrrverandi forsætisráðherra, hafi veriðð falið að skrifa bók um hundrað ára afmæli þingræðis á Íslandi.

Innlent
Fréttamynd

Iðgjöld á sjúkratryggingar

Lagt verður til á landsfundi Sjálfstæðisflokks að gera það að stefnu flokksins að taka upp greiðslu iðgjalda fyrir sjúkratryggingar. Á móti komi lækkun skatta. Einnig þurfi að skilgreina betur hvað falið sé í sjúkratryggingu.

Innlent
Fréttamynd

Neðanjarðarspilling

Þjóðin fær vart trúað að svona neðanjarðarspilling sé til staðar," sagði Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, þegar hann lagði út af fréttum um aðdraganda Baugsrannsóknarinnar í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Óviðunandi munur á mati stofnana

Lögboðið verðbólgumarkmið Seðlabankans næst ekki fyrr en eftir fjögur ár að mati fjármálaráðuneytisins. Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, segir óviðunandi hve miklu muni á mati Seðlabankans og fjármálaráðuneytisins á þenslu í hagkerfinu.

Innlent
Fréttamynd

Efla á víkingasveitina til muna

Víkingasveit Ríkislögreglustjóra fær 112 milljónum króna hærri fjárveitingu á næsta ári en hún fékk í ár samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Ástæðan er að efla á sveitina til muna. Mest fé fer í að fjölga sérsveitarmönnum um níu í Reykjavík og um sex í Keflavík auk þess sem ný bifreið verður keypt fyrir sveitina.

Innlent