Stj.mál

Fréttamynd

Ráðist í jarðgöng undir Óshlíð

Ríkisstórnin ákvað á fundi sínum í morgun að ráðast nú þegar í gerð jarðganga undir Óshlíð á milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar, en Óshlíðarvegurinn er eina tenging Bolvíkinga við umheiminn landleiðina. Þar hefur grjóthrun færst í vöxt og hvað eftir annað legið við slysum. Ráðgert er að göngin verði 120 metra löng og leysi af hólmi hættulegasta kafla Óshlíðarvegar.

Innlent
Fréttamynd

Vinsældir Villepin aukast

Forsætisráðherra Frakklands, Dominique de Villepin, mælist nú í fyrsta sinn með meira persónulegt fylgi en innanríkisráðherra landsins, Nicolas Sarkozy, en talið er að þeir muni keppa um forsetaembættið í Frakklandi árið 2007.

Innlent
Fréttamynd

Björn sækist eftir 7. sæti

Björn Gíslason, framkvæmdastjóri SHS fasteigna, hefur ákveðið að sækjast eftir 7. sæti á lista sjálstæðismanna í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík fyrir kosningar til borgarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Sameiginlegt framboð í Garðabæ

Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin í Garðabæ hafa ákveðið að bjóða fram sameiginlegan lista í bæjarstjórnarkosningunum næsta vor. Efnt verður til sameiginlegs opins prófkjörs um efstu sæti framboðslistans fyrir janúarlok og verður það bindandi fyrir þrjú efstu sæti listans.

Innlent
Fréttamynd

Dæmt til að borga starfsmanni laun

Fyrirtækið Norðan heiða á Hvammstanga verður að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum 1,3 milljónir króna auk dráttarvaxta, samkvæmt dómi Hæstaréttar. Starfsmanninum var sagt upp störfum vorið 2004 og skömmu eftir uppsögnina lét hann af störfum. Hann og yfirmann hans greindi á um hvort starfslokin væru að ósk starfsmannsins eða fyrirtækisins og höfðaði hann mál til að fá greidd laun í uppsagnarfresti.

Innlent
Fréttamynd

Hafi ekki fengið syndakvittun

Stjórnarandstæðingar segja af og frá að Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafi fengið syndakvittun, þrátt fyrir að umboðsmaður Alþingis kanni ekki að eigin frumkvæði, hvort ráðherra hafi verið vanhæfur þegar kom að sölu Búnaðarbankans.

Innlent
Fréttamynd

Framboð verði með minni kostnaði

Geir H. Haarde utanríkisráðherra segir að ríkisstjórnin hafi náð samstöðu um að standa við framboð Íslands til öryggisráðs Sameinu þjóðanna en að það verði gert með minni tilkostnaði. Geir gekk á fund utanríkismálanefndar klukkan ellefu í morgun, til að tilkynna nefndinni um afstöðu sína í málinu en áður hafði málið verið rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun.

Innlent
Fréttamynd

Opna tilboð í eignir og skuldir LL

Framkvæmdanefnd um einkavæðingu mun í dag opna tilboð í eignir og skuldir Lánasjóðs landbúnaðarins í viðurvist allra bjóðenda. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Ákveðið var á Alþingi í vor að selja allar eignir sjóðsins og semja um yfirtöku skulda hans, en frá 20. júní síðastliðnum hefur framkvæmdanefnd um einkavæðingu að annast undirbúning sölunnar.

Innlent
Fréttamynd

Slagurinn um þriðja sætið

Prófkjör Reykjavíkurfélags vinstri grænna verður á morgun. Úrslitin fyrir fyrstu tvö sæti listans eru sögð liggja fyrir, en slagurinn standi um þriðja sætið. Líklegast þykir að baráttan verði milli Gríms Atlasonar, Sóleyjar Tómasdóttur og Þorleifs Gunnlaugssonar.

Innlent
Fréttamynd

Álykta gegn framboði Íslands?

Svo gæti farið að Landsfundur sjálfstæðismanna álykti gegn framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og krefjist þess að framboðið verði dregið til baka. Í drögum að ályktunum fyrir flokksþing Ungra sjálfstæðismanna segir að sambandið vilji að framboð Íslands verði dregið til baka.

Innlent
Fréttamynd

Dagur útilokar ekki framboð

Á fundi fulltrúaráðs Samfylkingarinnar á miðvikudagskvöld var ákveðið að halda opið stuðningsmannaprófkjör vegna borgarstjórnarkosninga í Reykjavík helgina 11.-12. febrúar. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort allir sem lýsa yfir stuðningi við Samfylkingu mega kjósa, eða kosning verði opin öllum.

Innlent
Fréttamynd

Fiskistofa flutt í Hafnarfjörð

Eitt síðasta verk Árna Mathiesen, fráfarandi sjávarútvegsráðherra, var að flytja Fiskistofu í heimabæ sinn Hafnarfjörð. Fiskistofa hefur verið staðsett í Höfn við Ingólfsstræti frá 1992 og þar starfa 94 starfsmennn auk 33 veiðieftirlitsmanna. Fyrir utan höfuðstöðvarnar í Hafnarfirði eru einnig starfrækt útibú á Ísafirði og Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Látið verði af tortryggni

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að í ljósi þess að umboðsmaður Alþingis sjái ekki forsendu til þess að kanna hæfi hans við sölu ríkisins á Búnaðarbankanum, sé orðið tímabært að stjórnarandstaðan láti af tortryggni sinni í garð hans og að þau atriði sem umboðsmaður spyrji um séu nú þegar til athugunar í ráðuneytinu.

Innlent
Fréttamynd

Valgerður þingaði með Jónínu Ben.

Jónína Benediktsdóttir átti fund um Jón Gerald og Baug með ráðherra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, Valgerði Sverrisdóttur, þremur vikum áður en Davíð Oddsson fundaði með Hreini Loftssyni, stjórnarformann Baugs, í London. Valgerður segist ekki hafa rætt þennan fund efnislega við nokkurn ráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Mótmæla uppsögnum á Siglufirði

Bæjarráð Siglufjarðar mótmælir harðlega þeirri ákvörðun Símans að leggja niður starfsstöð fyrirtækisins á Siglufirði og segja upp tveimur starfsmönnum í ályktun sem ráðið sendir frá sér í dag. Þar er bent á að á tímum geti Siglufjörður verið einangraður staður og gríðarlega mikilvægt sé að á staðnum séu aðilar sem geta sinnt fyrirtækjum og einstaklingum varðandi fjarskiptamál.

Innlent
Fréttamynd

Ekki einhugur um sameiningu

Bæði bæjarstjórn Hafnarfjarðar og hreppsnefnd Vatnsleysustrandarhrepps hvetja íbúa sína til að taka þátt í kosningum um sameiningu þessara sveitarfélaga 8. október. Ekki ríkir þó einhugur um væntanlega sameiningu hjá hreppsnefnd Vatnleysustrandarhrepps.

Innlent
Fréttamynd

Sigríður Anna samstarfsráðherra

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra er orðin samstarfsráðherra Norðurlanda og tekur við því starfi af Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Fyrsta verkefni Sigríðar Önnu verður að funda með samstarfsráðherrum Norðurlandanna vegna Norðurlandaráðsþings sem haldið verður í Reykjavík undir lok næsta mánaðar.

Innlent
Fréttamynd

Vill kosningabandalag á Ísafirði

Vinstri - grænir á Ísafirði vilja bjóða fram sameiginlegan lista með Samfylkingunni og Frjálslynda flokknum við bæjarstjórnarkosningar næsta vor. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður Vinstri - grænna á Ísafirði, segir það mat Vinstri - grænna að sameiginlegt framboð hefði möguleika á að ná meirihluta í bæjarstjórn, en í dag mynda Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur meirihluta í bæjarstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Bolli endurkjörinn formaður

Bolli Thoroddsen var í gærkvöld endurkjörinn formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, til eins árs. Bolli hlaut 528 atkvæði en mótframbjóðandi hans Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson fékk 458 atkvæði. Tæplega ellefu hundruð félagsmenn greiddu atkvæði á aðalfundinum í gærkvöldi sem Heimdellingar segja þann fjölmennasta í sögu félagsins.

Innlent
Fréttamynd

Skoðar ekki hæfi Halldórs

Umboðsmaður Alþingis segist ekki ætla að skoða að eigin frumkvæði hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra vegna sölu ríkisins á Búnaðarbankanum. Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna á Alþingi höfðu sent umboðsmanni erindi þar sem hann var hvattur til að kanna hæfi Halldórs í tengslum við sölu bankans.

Innlent
Fréttamynd

Bæjarstjórn styður sameiningu

Bæjarstjórn Hafnarfjarðar lýsir yfir stuðningi sínum við sameiningu Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandarhrepps í kosningum 8. október í tilkynningu sem hún sendir frá sér í dag. Þá hvetur bæjarstjórnin íbúa í Hafnarfirði til að kynna sér vel þær upplýsingar sem liggja fyrir og jafnframt að taka þátt í kosningunum.

Innlent
Fréttamynd

Bregðist við fréttum Fréttablaðs

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur skipað Póst- og fjarskiptastofnun að bregðast sérstaklega við vegna frétta <em>Fréttablaðsins</em> sem byggja á tölvupóstum sem það hefur komist yfir. Stofnunin hefur eftirlit með fjarskiptafyrirtækjum og starfsmönnum þeirra. Sturla segir í bréfi sem hann hefur ritað stofnuninni að tölvupóstur og önnur gögn um einkamálefni fólks njóti ríkrar verndar í stjórnarskrá og fjarskiptalögum.

Innlent
Fréttamynd

Krefur ráðuneytið um upplýsingar

Umboðsmaður Alþingis kannar ekki hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra við sölu ríkisins á Búnaðarbankanum til S-hópsins árið 2002. Umboðsmaður krefur þó forsætisráðuneytið um upplýsingar um hvaða reglum sé fylgt við einkavæðingu.

Innlent
Fréttamynd

Geir hættir í stjórnarskrárnefnd

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hefur að ósk Geirs H. Haarde leyst hann undan skyldum sínum í stjórnarskrárnefnd. Í stað Geirs tekur Bjarni Benediktsson, formaður allsherjarnefndar, sæti í stjórnarskrárnefndinni. Geir tók í gær við starfi utanríkisráðherra þegar Davíð Oddsson hætti í ríkisstjórn eftir fjórtán ára ráðherratíð.

Innlent
Fréttamynd

Guðmundur bæjarstjóri á Akranesi

Guðmundur Páll Jónsson tekur við starfi bæjarstjóra á Akranesi 1. nóvember næstkomandi, þetta var ákveðið á bæjarstjórnarfundi í gær. Guðmundur leysir Gísla Gíslason sem verið hefur bæjarstjóri í átján ár af hólmi en Gísli verður hafnarstjóri Faxaflóahafna sem reka hafnirnar í Reykjavík, Borgarnesi, á Akranesi og Grundartanga. Guðmundur Páll hefur setið í bæjarstjórn Akraness fyrir Framsóknarflokkinn frá árinu 1994, síðasta árið sem formaður bæjarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

2 milljarða afgangur á ríkissjóði

Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi á síðasta ári samkvæmt niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2004 samanborið við 6,1 milljarðs króna halla árið áður. Þegar afkoman er skoðuð án tilfallandi liða eins og eignasölu, lífeyrisskuldbindinga og afskrifta skattkrafna er afgangur um 23 milljarðar á meðan halli ársins á undan nam rúmum einum milljarði króna á sama grunni.

Innlent
Fréttamynd

Síðasti ríkisstjórnarfundur Davíðs

Davíð Oddsson lætur af ráðherradómi á ríkisráðsfundi að Bessastöðum í dag. Þetta verður í fyrsta sinn síðan fyrsta stjórn Davíðs tók við völdum 30. apríl 1991 sem hann er ekki ráðherra í ríkisstjórn. Einar K. Guðfinnsson kemur nýr inn í ríkisstjórn og tekur við starfi sjávarútvegsráðherra af Árna Mathiesen sem fer í fjármálaráðuneytið í stað Geirs H. Haarde sem verður utanríkisráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Samfylking missir mann

"Þannig var að þegar Gunnar Örlygsson flutti sig til Sjálfstæðisflokksins þá stóðu fjórði maður Samfylkingar og fimmti maður Sjálfstæðisflokks jafnir á hlutföllum innan fjárlaganefndar. Það kom til hlutkestis sem ég tapaði," segir Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Lakari afkoma en stefnt var að

Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var nær fimm milljörðum króna lakari en stefnt var að. Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi en í fjárlögum var gert ráð fyrir tæplega sjö milljarða króna afgangi. Niðurstaðan er þó hagstæðari en árið 2003 þegar rúmra sex milljarða króna halli var á rekstri ríkissjóðs.

Innlent
Fréttamynd

Davíð kveður þakklátur

Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat sinn síðasta ríkisstjórnarfund í gær, en hann tekur við stöðu seðlabankastjóra 20. október næstkomandi. Ráðherraskiptin urðu á ríkisráðsfundi síðdegis í gær.

Innlent