Lögreglumál
82 83 84 85 86 87 88 89 90 … 274 ›
Ólöglegir með fíkniefni og ölvaður á hóteli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur mönnum sem reyndust dvelja ólöglega hér á landi í gærkvöldi og nótt. Um var að ræða tvö aðskilin mál. Innlent 6.1.2023 06:18
Sakborningur í hryðjuverkamálinu: Yfirlýstur nasisti sem finnst hommar fá of mikið pláss Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa ætlað sér að fremja hryðjuverk hér á landi kvaðst vera nasisti í skýrslutöku og sagði homma fá of mikið pláss í samfélaginu. Þá ætti að „banna þá frá börnum.“ Maðurinn sagðist vera ósáttur við hvernig útlendingar streymdu inn í landið, vinni ekkert og lifi á kerfinu. Hér væri of mikið af útlendingum og „aðal vandamálið væri þá öfgamúslímar.“ Innlent 5.1.2023 23:38
Kristján Einar handtekinn á Húsavík Kristján Einar Sigurbjörnsson var handtekinn af sérsveitarmönnum á Húsavík í kvöld. Þetta staðfestir hann við Vísi og segir að sér hafi verið sleppt eftir að neikvæð niðurstaða fékkst úr áfengis- og vímuefnaprófi. Innlent 5.1.2023 22:48
Viðbúnaður hjá lögreglu í Miðtúni í Reykjavík Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var með nokkurn viðbúnað í Miðtúni í Reykjavík á fjórða og fimmta tímanum í dag. Sérsveitarmenn voru kallaðir til vegna málsins en að sögn aðalvarðstjóra var um að ræða útkall vegna veiks einstaklings sem var vopnaður hnífi. Innlent 5.1.2023 16:35
Konan sem lýst var eftir er fundin Kona á fertugsaldri sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsti eftir fyrr í dag er komin í leitirnar. Ekkert hafði spurst til hennar frá 26. desember þegar hún fór frá dvalarstað sínum í Reykjavík og var hennar leitað í dag. Innlent 5.1.2023 15:14
Svikarar narra leigjendur í neyð með fölskum gylliboðum Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, segir að um alveg sérlega ósvífna tegund af svikastarfsemi sé að ræða en brögð eru að því að óprúttnir hrappar geri út á neyð leigjenda. Þeir auglýsa íbúðir til leigu, sem er tilbúningur en heimta sérstakt umsóknargjald svo leigjendur eigi möguleika á að sækja um íbúðina. Innlent 5.1.2023 12:47
Fyrstu rannsóknir benda til að efnið hafi verið hættulaust Fyrstu niðurstöður greiningar Háskóla Íslands á innihaldi sendingarinnar sem var fjarlægð úr bandaríska sendiráðinu í gær sýna fram á að innihaldið sé hættulaust. Innlent 5.1.2023 12:20
Arna fer fram á að rannsókn á hendur sér verði felld niður Arna McClure, yfirlögfræðingur Samherja, hefur farið þess á leit við dómstóla að rannsókn héraðssaksóknara á hendur henni verði úrskurðuð ólögmæt og felld niður. Innlent 5.1.2023 06:51
Ekki bara færðin sem var að trufla menn í umferðinni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti nokkuð fjölbreyttum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð út vegna nokkurs fjölda umferðarslysa. Innlent 5.1.2023 06:34
Rúta valt við Kirkjubæjarklaustur Rúta fór út af vegi við Kirkjubæjarklaustur og valt á hliðina rétt í þessu. Innlent 4.1.2023 18:35
Hjálparköll sendiráða setja skýrt verklag í gang hjá lögreglu Runólfur Þórhallsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá greiningardeild ríkislögreglustjóra, segir að reglulegt verklag hafi farið af stað á þriðja tímanum í dag þegar boð barst frá bandaríska sendiráðinu um dularfulla pakkasendingu. Tveir starfsmenn sendiráðsins voru sendir á sjúkrahús í varúðarskyni. Ekkert amar að þeim. Innlent 4.1.2023 17:12
Starfsfólk sendiráðsins á sjúkrahús vegna grunsamlegrar sendingar Starfsfólk bandaríska sendiráðsins við Engjateig var flutt á sjúkrahús til skoðunar til öryggis eftir að það handlék grunsamlega sendingu. Sérsveit ríkislögreglustjóra og slökkvilið var kallað til vegna sendingarinnar. Innlent 4.1.2023 14:17
Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu. Innlent 4.1.2023 09:30
Hafði í hótunum við starfsfólk fyrirtækis Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var meðal annars kallað út eftir að maður hafði haft í hótunum við starfsfólk fyrirtækis og svo óhlýðnast fyrirmælum lögreglu. Innlent 4.1.2023 06:17
Níu fluttir með flugi til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðarslys Harður árekstur varð á Suðurlandi í dag. Fólksbíll og jeppi skullu saman á Suðurlandsvegi við Öldulón og Fagurhólsmýri, suður af Öræfajökli, um klukkan tvö en níu manns voru í bílunum tveimur. Innlent 3.1.2023 16:39
Óska eftir að ræða við sundlaugargesti sem urði vitni að banaslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ná tali af sundlaugargestum sem voru á vettvangi þegar karlmaður á áttræðisaldri missti meðvitund í Breiðholtslaug og lést í kjölfarið í síðasta mánuði. Andlát mannsins er til rannsóknar hjá lögreglunni. Innlent 3.1.2023 10:40
Hlæjandi maður, handtekinn hundur og bífræfinn grænmetisþjófur Verkefni lögreglunnar eru jafn misjöfn og þau eru mörg og enginn dagur er eins. Vísir fór yfir dagbókarfærslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2022 og tók saman nokkur athyglisverð, óvenjuleg, og í sumum tilvikum spaugileg útköll. Innlent 2.1.2023 23:37
Handtekinn eftir útafakstur á Vatnsendavegi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu handtók karlmann eftir að tilkynnt hafði verið um að bíl hafði verið ekið út af Vatnsendavegi um klukkan 18:30 í kvöld. Innlent 1.1.2023 21:49
Fjórir í bíl sem valt á Þingvallavegi Enginn slasaðist þegar bíll sem fjóra um borð valt á Þingvallavegi í morgun. Innlent 1.1.2023 17:27
Árásarþolinn endaði sjálfur í fangageymslu Um tvö leytið í nótt var óskað aðstoðar lögreglu vegna líkamsárásar í miðborginni. Árásaraðilinn var handtekinn á vettvangi, en þá reyndi árásarþolinn að frelsa hinn handtekna og var þá sjálfur handtekinn. Innlent 1.1.2023 08:39
Sló mann í höfuðið með pönnu Lögreglan á höfuðborgarsvæði var kölluð til í gærkvöldi í úthverfi Reykjavíkurborgar vegna meiriháttar líkamsárásar þar sem maður hafði slegið annan mann í höfuðið með pönnu. Innlent 31.12.2022 07:51
Segir skárra að fá í sig rafstraum en kylfuhögg Formaður Landssambands lögreglumanna segir lögreglumenn fagna ákvörðun dómsmálaráðherra um að breyta reglugerð til þess að heimila lögreglunni að bera svokölluð rafvarnarvopn, sem í daglegu tali eru kölluð rafbyssur. Innlent 30.12.2022 21:12
Rannsaka andlát hreyfihamlaðs manns í Breiðholtsslaug Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur andlát hreyfihamlaðs manns í Breiðholtslaug til rannsóknar. Talið er að hann hafi legið hreyfingarlaus á botni heits potts í um þrjár mínútur áður en sundlaugargestur kom að honum. Maðurinn var á áttræðisaldri þegar hann lést í byrjun desember. Innlent 30.12.2022 20:01
Lögreglan óskar eftir vitnum að banaslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að umferðarslysi sem varð á Höfðabakka í Reykjavík aðfaranótt laugardagsins 10. desember síðastliðinn, þar sem ekið var á gangandi vegfaranda sem lést. Innlent 30.12.2022 13:57
Lögregla kölluð til vegna öskrandi aðila á bílskúrsþaki sem reyndist vera að losa um spennu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í nótt um öskrandi aðila á bílskúrsþaki, beran að ofan. Þegar lögregla kom á vettvang og gaf sig á tal við manninn kom í ljós að hann hafi farið út að öskra til að losa um spennu. Þá var tilkynnt um nágranna sem rifust vegna snjómoksturs og sofandi aðila í snjóskafli. Innlent 30.12.2022 09:22
Öskrandi á bílskúrsþaki, sofandi í snjóskafli og snjóerjur nágranna Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í heldur óvenjulegt útkall í gær þegar hún var kölluð til vegna manns sem var sagður standa uppi á bílskúrsþaki, ber að ofan og öskrandi. Innlent 30.12.2022 06:35
Ætla ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafa borist Einungis ófullnægjandi gögn hafa borist ríkislögreglustjóra frá lögreglunni í dóminíska lýðveldinu í máli Hrafnhildar Lilju sem myrt var fyrir fjórtán árum. Þetta segir yfirlögregluþjónn sem ætlar ekki að láta kyrrt liggja fyrr en fullnægjandi svör hafi borist. Innlent 29.12.2022 19:40
Fjögur stórfelld fíkniefnabrot í nóvember 707 hegningarlagabrot voru skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nóvember en brotum fækkaði talsvert milli mánaða. Fjögur stórfelld fíkniefnabrot voru skráð í nóvember. Innlent 29.12.2022 12:49
Fimm ára barn sat óbeltað í kjöltu móður sinnar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann bifreiðar í gær þar sem of margir farþegar voru í bílnum. Umrædd bifreið tekur aðeins tvo farþega en þrír voru í bifreiðinni. Umframfarþeginn var fimm ára barn, sem sat í fangi móður sinnar. Innlent 29.12.2022 06:29
„Almenningur sér í gegnum þetta fimbulfamb hjá lögreglunni“ Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður annars þeirra sem eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka, segir ákvörðun lögreglu um að hækka viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar vera sýndarmennsku. Ákvörðunina tók lögregla í kjölfar þess að Landsréttur féllst ekki á kröfu um gæsluvarðhald yfir mönnunum. Innlent 28.12.2022 18:58
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent