Fréttir
110 111 112 113 114 115 116 117 118 … 334 ›
Aukin neysla eykur verðbólgu og dregur úr líkum á vaxtalækkun Markaðasaðilar eru svartsýnni en áður á hjöðnun verðbólgu samkvæmt könnun Seðlabankans sem dregur væntanlega úr líkum á því að bankinn lækki meginvexti sína á miðvikudag. Hagfræðingur Landsbankans segir mikinn kraft í hagkerfinu með aukinni neyslu Íslendinga og erlendra ferðamanna. Innlent 19.8.2024 12:00
Þyrlan sótti veikan farþega skemmtiferðaskips Veikur farþegi skemmtiferðaskips var sóttu með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Grundarfjörð nú fyrir hádegið. Óskað var eftir aðstoð þyrlunnar til þess að koma farþeganum undir læknishendur í Reykjavík. Innlent 19.8.2024 11:38
Fólk með gólfhitakerfi ætti að sýna sérstaka aðgát Stærsta heitavatnslokun í sögu Veitna skellur á í kvöld. Heitavatnslaust verður hjá næstum þriðjungi þjóðarinnar fram á miðvikudag. Pípulagningameistari ráðleggur íbúum að skrúfa fyrir krana og loka fyrir inntak heits vatns. Þá þurfi fólk með gólfhitakerfi að huga sérstaklega að sínum kerfum. Innlent 19.8.2024 11:29
Skjálftar á Reykjanesi, í efnahagslífinu og í pólitíkinni Í hádegisfréttum beinum við sjónum okkar að verðbólgunni og vaxtaákvörðun Seðlabankans síðar í vikunni. Innlent 19.8.2024 11:27
Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring. Innlent 19.8.2024 10:11
Einn látinn og sex saknað eftir að lystisnekkja sökk við Sikiley Að minnsta kosti einn er látinn og sex manns er enn saknað eftir að lystisnekkja með erlenda ferðamenn um borð sökk í slæmu veðri undan ströndum Sikileyjar á Ítalíu í nótt. Fimmtán manns, þar á meðal ársgömlu barni, var bjargað. Erlent 19.8.2024 09:13
Kaldi eða stinningskaldi en bjart fyrir sunnan og vestan Spáð er kalda eða stinningskalda með vætu norðan- og austanlands í dag en björtu sunnan- og vestantil. Úrkomusvæði kemur að suðausturströndinni síðdegis og fer norður yfir austanvert landið í kvöld og nótt. Veður 19.8.2024 08:38
Stjórnvöld virkja neyðarúrræði vegna yfirfullra fangelsa Stjórnvöld á Englandi hafa virkjað neyðarúrræði vegna plássleysis í fangelsum landsins, sem hafa löngum verið yfirfull en eru nú komin að þolmörkum vegna óeirða síðustu vikna. Erlent 19.8.2024 08:05
Aukning í skjálftavirkni heldur áfram Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga. Innlent 19.8.2024 07:40
Blinken segir komið að ögurstundu í samningaviðræðunum Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir komið að ögurstundu í friðarviðræðum Ísrael og Hamas og nú sé mögulega lokatækifærið til að semja um lausn gíslanna sem Hamas tóku fanga í árásum sínum 7. október síðastliðinn. Erlent 19.8.2024 07:20
Segir Trump mögulega munu tapa ef hann breytir ekki um stefnu Repúblikaninn Lindsey Graham segir Donald Trump eiga á hættu að tapa forsetakosningunum ef hann haldi áfram að ögra og eggja í stað þess að eiga málefnalegar umræður. Erlent 19.8.2024 06:54
Tugir barna á bið eftir leikskólaplássi á höfuðborgarsvæðinu Börn eru á biðlista eftir leikskólaplássi í nærri öllum sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Um 36 bíða í Garðabæ, 23 í Hafnarfirði og 141 barn í Kópavogi. Ekkert barn bíður í Mosfellsbæ en fimm á Seltjarnarnesi. Í Reykjavík er enn verið að vinna að innritun og fjöldi á bið enn óljós. Innlent 18.8.2024 22:54
Segir tilganginn með innrás í Kúrsk að búa til hlutlaust svæði Forseti Úkraínu, Volodomír Seleneskíj, segir að með því að ráðast inn í Kúrskhérað í Rússlandi vonast hann til þess að geta búið til hlutlaust svæði til að vernda Úkraínu. Hann segist vilja stöðva árásir rússneska hersins þvert yfir landamærin og að þessi gagnsókn hafi verið það sem þurfti. Erlent 18.8.2024 21:53
Feður sameinuðustu gegn þjóðarmorði á samstöðufundi Feður, kennarar, rithöfundar og aðrar starfsstéttir sameinuðust í gær í samstöðugöngu á vegum Félagsins Ísland Palestínu gegn þjóðarmorði, stríðsglæpum, barnamorðum, eyðileggingu og ofbeldi Ísraelshers. Um 1.200 gengu saman frá Hallgrímskirkju að Austurvelli samkvæmt tilkynningu félagsins. Krafa þeirra sem gengu var sú að íslensk stjórnvöld setji á viðskiptaþvinganir og slíti tafarlaust stjórnmálasambandi við Ísrael. Innlent 18.8.2024 21:22
Læknar á Indlandi krefjast aðgerða vegna nauðgunar Unglæknar á Indlandi mættu margir ekki til vinnu í dag þrátt fyrir að boðuðu verkfalli Læknasamtakanna væri lokið. Læknasamtökin á Indlandi boðuðu til verkfalls um allt land til að krefjast úrbóta fyrir lækna og sérstaklega kvenkyns lækna eftir að 31 árs læknanema var nauðgað og hún myrt á vakt. Erlent 18.8.2024 21:04
Ríkisstjórnin gæti ekki lengur að hagsmunum almennings Formaður Viðreisnar segir það hagsmunamál allra að gengið verði til kosninga sem fyrst. Ríkisstjórnin gæti ekki lengur að hagsmunum almennings heldur einungis flokka sinna og ráðherra. Innlent 18.8.2024 21:00
Kýrin Mugga bar þremur myndarlegum kvígum Kýrin Mugga á bænum Steindyrum í Svarfaðardal er engin venjuleg kýr því hún bar þremur kálfum, allt hraustar kvígur. Innlent 18.8.2024 20:04
Ónotuð hraðtískuföt hrannast upp hjá Rauða krossinum Fatasöfnun Rauða krossins hefur tekið ákvörðun um að selja ekki vörur frá netverslunum eins og Shein og Temu í búðum sínum á Íslandi. Teymisstjóri söfnunarinnar segir gríðarlegt magn af slíkum fötum rata í söfnunargáma og oft séu þau jafnvel ónotuð. Innlent 18.8.2024 19:10
Ellefu ára drengur myrtur á Spáni Lögreglan á Spáni leitar nú manns sem grunaður er um að hafa myrt ellefu ára gamlan dreng með eggvopni fyrr í dag. Drengurinn var úti að leika með vinum sínum þegar maður með hettu réðst á hann snemma í dag. Erlent 18.8.2024 18:34
Kýtingur á stjórnarheimilinu og ofgnótt af hraðtískufötum Dómsmálaráðherra og formaður Vinstri grænna eru ósammála um forgangstöðun í málefnum útlendinga. Í síðustu viku lýsti annar ráðherra sig ósammála formanninum um orkumál. Rætt verður við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann Viðreisnar í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 18.8.2024 18:01
Lýstu yfir þungum áhyggjum af risi öfgahægri afla Fjölmennur flokksráðsfundur VG fór fram í Reykjanesbæ í gær, laugardaginn 17. ágúst. Vel yfir eitt hundrað félagsmenn komu saman og samþykktu við lok fundar 17 ítarlegar ályktanir. Ályktanirnar fjölluðu meðal annars um róttækar breytingar á húsnæðismarkaði, ójöfnuð, Palestínu og stríðið á Gasa, auðlindir, innflytjendur og margt fleira. Innlent 18.8.2024 17:25
Skeytasendingar ráðherra til marks um valdþreytu Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar segir ráðherra ríkisstjórnarinnar, sem nokkrir hafa munnhöggvast opinberlega síðustu daga, nota stöðu sína í eigin þágu til að skapa sér sérstöðu í aðdraganda kosninga. Innlent 18.8.2024 16:18
Ungir og óreyndir Rússar á landamærunum Talsmaður úkraínska hersins segir um 100 til 150 rússneska hermenn hneppta í prísund á hverjum degi í Kursk-héraði í Rússlandi, þar sem Úkraínumenn halda áfram sókn sinni. Það séu meira eða minna ungir hermenn sem hafi nýlega verið kvaddir í herinn og hafi lítinn áhuga á að berjast. Erlent 18.8.2024 15:36
Ekki lengur hægt að valta yfir lítil sveitarfélög úti á landi Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir ekkert munu verða af áformum um uppbyggingu grænnar orkuvinnslu án þess að tekjur sveitarfélaga þar sem orkuvinnslan fer fram verði tryggð. Innlent 18.8.2024 15:18
Rúmlega 20 slasaðir eftir eld í parísarhjóli Minnst 23 slösuðust þegar tveir eldur kviknaði í tveimur vögnum parísarhjóls á tónlistarhátíð í Leipzig í gærkvöldi. Erlent 18.8.2024 12:35
Stærra svæði aldrei orðið heitavatnslaust Íbúar víða á höfuðborgarsvæði verða að búa sig undir heitavatnsleysi næstu þrjá daga. Aldrei fyrr hefur jafn stórt svæði orðið fyrir truflunum. Innlent 18.8.2024 12:09
„Algjörlega ósammála“ samráðherra sínum Dómsmálaráðherra er ósammála samráðherra sínum í ríkisstjórn og formanni Vinstri grænna um að breytingar á útlendingalögum eigi ekki að vera forgangsmál. Hún boðar frekari breytingar í haust og segir núverandi stöðu ekki ganga til lengdar. Innlent 18.8.2024 11:46
Ósætti meðal ráðherra og víðtækt heitavatnsleysi Dómsmálaráðherra segist ósammála samráðherra sínum og formanni Vinstri grænna um að breytingar á útlendingalögum eigi ekki að vera forgangsmál. Hún boðar frekari breytingar í haust. Innlent 18.8.2024 11:42
Tvö þúsund þegar skrifað undir til stuðnings Helga Magnúsi Búið er að koma upp undirskriftalista á Íslandi.is til stuðnings Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara. Ríkissaksóknari hefur óskað eftir því að hann verði leystur af störfum vegna umdeildra ummæla í garð hinsegin fólks og útlendinga. Innlent 18.8.2024 11:33
Blinken reynir hvað hann getur Anthony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna er mættur til Ísraels í þeim tilgangi að hefja viðræður um vopnahlé á Gasasvæðinu milli Ísraela og Hamas-samtakanna. Háttsettir félagsmenn Hamas segja hugmyndir um mögulegt vopnahlé á Gasasvæðinu einungis blekkingu. Það er þrátt fréttaflutning af aukinni bjartsýni um að samkomulag náist. Erlent 18.8.2024 10:47