Erlent
1 2 3 4 5 6 7 … 334 ›
Haldið föngnum neðanjarðar án sólarljóss mánuðum saman Hátt í hundrað Palestínumönnum, mikill meirihluti þeirra óbreyttir borgarar, er haldið föngum í einangrunarvist neðanjarðar þar sem þeir sjá aldrei dagsljósið. Þeir fá ekki að vera í neinu sambandi við fjölskyldur sínar eða umheiminn. Á meðal þeirra sem var nýverið sleppt er nítján ára götusali sem hafði ekki séð sólarljós frá því í janúar. Erlent 8.11.2025 16:50
Bretar vilja fara „dönsku leiðina“ í innflytjendamálum Shabana Mahmood innanríkisráðherra Bretlands vill fara dönsku leiðina í innflytjendamálum. Fulltrúar ráðuneytisins voru sendir til Danmerkur til að kynna sér kerfið þar. Danir eru með einhverja ströngustu innflytjendalöggjöf í Evrópu. Erlent 8.11.2025 14:53
Einn uppgötvenda byggingar DNA látinn James Dewey Watson, einn uppgötvenda tvöfaldrar gormbyggingar DNA og Nóbelsverðlaunahafi, er látinn, 97 ára að aldri. Rannsóknir hans á sviði erfðafræði og læknisfræði voru byltingarkenndar og langur ferill hans hafði djúpstæð áhrif á vísindin. Erlent 8.11.2025 09:59
Útbjuggu heimagerðar sprengjur fyrir árásir á húsnæði flóttamanna Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að skipuleggja hryðjuverk fyrir hönd hryðjuverkasamtaka sem aðhyllast hægri öfgahyggju en talsvert magn sprengiefni fannst á heimili eins þeirra. Erlent 7.11.2025 23:41
Trump veitir Ungverjum undanþágu Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur gert Ungverja undanskilda refsiaðgerðum vegna kaupa á olíu frá Rússlandi, að sögn utanríkisráðherra Ungverjalands. Trump fundaði með Viktor Orbán forsætisráðherra í Hvíta húsinu í dag. Erlent 7.11.2025 22:48
Skoðar að undanþiggja Ungverja viðskiptaþvingunum á Rússa Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði það til skoðunar að veita Ungverjalandi undanþágu frá viðskiptaþvingunum á olíu frá Rússlandi. Hann og Viktor Orbán forsætisráðherra Ungverjalands funduðu í Hvíta húsinu í dag. Erlent 7.11.2025 21:41
Neita fregnum um að Lavrov hafi verið settur af Talsmaður Kremlar hafnar því algerlega að Sergei Lavrov, utanríkisráðherra, hafi verið settur út í kuldann. Því hefur verið haldið fram að Lavrov hafi fallið í ónáð eftir að ekkert varð af fundi Vladímírs Pútín forseta og Bandaríkjaforseta í Ungverjalandi. Erlent 7.11.2025 15:08
Dæmd í fangelsi fyrir áreitið Hin 24 ára gamla Julia Wandelt sem um árabil hefur sagst vera Madeilene McCann hefur verið fundin sek um áreiti í garð fjölskyldu hinnar týndu stúlku og dæmd til sex mánaða fangelsisvistar. Henni verður auk þess gert að halda sig fjarri fjölskyldunni til framtíðar. Erlent 7.11.2025 13:45
Guðmundur dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morð í Svíþjóð Guðmundur Mogensen, 41 árs hálfíslenskur karlmaður, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð fyrir að hafa orðið konu um sextugt að bana í október í fyrra og fyrir tilraun til manndráps gegn annarri konu. Erlent 7.11.2025 10:51
Njósnað um konuna sem ásakaði Khan um kynferðisbrot Stjórnvöld í Katar eru sögð hafa ráðið tvö bresk fyrirtæki til að afla upplýsinga um konu sem hefur sakað Karim Khan, yfirsaksóknara Alþjóðlega sakamáladómstólsins (ICC), um kynferðisbrot. Erlent 7.11.2025 07:30
Gefa grænt ljós á kröfur um skráningu líffræðilegs kyns í vegabréfum Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur lagt blessun sína yfir ákvörðun ríkisstjórnar Donald Trump um að hætta að heimila einstaklingum að velja kyn í vegabréfum. Erlent 7.11.2025 06:58
Rússar nærri stærstu landvinningunum í rúm tvö ár Rússneskir hermenn virðast nærri því að vinna sinn stærsta sigur í rúm tvö ár. Borgin Pokrovsk, sem Rússar hafa reynt að ná úr höndum Úkraínumanna í um eitt og hálft ár og hafa þeir sent umfangsmikinn herafla á svæðið til að ná því markmiði. Erlent 6.11.2025 22:44
Lykilorð Louvre einfaldlega Louvre Lykilorðið að öryggismyndavélakerfi Louvre-safnsins þegar brotist var inn í síðasta mánuði var einfaldlega nafn safnsins. Engin öryggismyndavél sneri heldur að glugganum sem þjófarnir brutu til að komast inn. Erlent 6.11.2025 21:38
„Samlokumaðurinn“ sýknaður Bandarískur maður sem gengið hefur undir nafninu „samlokumaðurinn“ undanfarnar vikur var í kvöld sýknaður af tiltölulega smávægilegri ákæru fyrir að kasta samloku í starfsmann Landamæraeftirlits Bandaríkjanna. Það gerði maðurinn, sem heitir Sean Dunn, í miðbæ Washington DC í ágúst. Erlent 6.11.2025 20:22
Féll í yfirlið í skrifstofu Trumps Maður féll í yfirlið í skrifstofu Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í kvöld. Það gerðist á blaðamannafundi þar sem Trump og ráðherrar hans voru að kynna samkomulag um lækkun verðs á þyngdarstjórnunarlyfjum í Bandaríkjunum. Erlent 6.11.2025 18:52
Segjast hafa fundið vopn frá Hamas fyrir hryðjuverk í Evrópu Austurríska leyniþjónustan segist hafa lagt hald á vopnabirgðir Hamas-samtakanna palestínsku í Vín. Mögulega hafi staðið til að nota þau til þess að fremja hryðjuverk í Evrópu. Erlent 6.11.2025 14:19
Rannsaka hakakrossa sem voru málaðir með blóði úr manni Tugir bíla, póstkassar og húsveggir voru saurgaðir með hakakrossum sem voru málaðir með blóði úr manni í borginni Hanau í Þýskalandi í vikunni. Lögregla rannsakar spellvirkin en tákn nasismans eru ólögleg í Þýskalandi. Erlent 6.11.2025 13:39
Pútín sagður beina kúgunartækjum sínum að eigin stuðningsmönnum Hreinsanir innan raða stuðningsmanna Vladímírs Pútín Rússlandsforseta eru sagðar hafnar. Þær eru sagðar endurspegla valdabaráttu ólíkra fylkinga þeirra sem styðja forsetann. Erlent 6.11.2025 11:55
Flugumferðarstjórar að bugast og dregið úr ferðum innanlands Ráðherra samgöngumála í Bandaríkjunum, Sean Duffy, varar við því að frá og með morgundeginum gæti komið til þess að draga þurfi úr fjölda þeirra flugferða sem farnar eru frá fjörutíu stórum flugvöllum í Bandaríkjunum svo nemur tíu prósentum. Erlent 6.11.2025 07:36
Belgar kalla saman þjóðaröryggisráð vegna drónaflugs við flugvelli Þjóðaröryggisráð Belgíu kemur saman til neyðarfundar í dag vegna drónaflugs við flugvelli í landinu sem röskuðu ferðaáætlunum farþega og hefur valdið áhyggjum af öryggismálum. Rússar eru sagðir „mjög líklega“ bera ábyrgð á sífjölgandi atvikum þar sem óvelkomnir drónar hafa verið á sveimi í evrópskri lofthelgi síðan um miðjan september. Erlent 6.11.2025 07:34
Tala látinna hækkar á Filippseyjum Tala látinna á Filippseyjum eftir að fellibylurinn Kalmaegi gekk yfir er nú komin í 114 og forseti landsins, Ferdinand Marcos yngri hefur lýst yfir neyðarástandi. Erlent 6.11.2025 07:29
Óttast að María sé að stela athyglinni frá Jesú á samfélagsmiðlum Páfagarður hefur gefið frá sér yfirlýsingu, samþykkta af Leó páfa, þar sem segir að Jesús einn hafi frelsað mannkynið og bjargað því frá helvíti. María hafi ekki átt þar þátt. Erlent 6.11.2025 07:12
Tortryggnir í garð tolla Trumps Dómarar hæstaréttar Bandaríkjanna virðast hafa töluverðar efasemdir um það að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi farið að lögum við beitingu tolla sinna á undanförnum mánuðum. Það er ef marka má spurningar þeirra í dag þegar málsmeðferð um lögmæti tollanna fór fram en þá spurðu margir dómaranna lögmann ríkisstjórnar Trumps gagnrýnna spurninga. Erlent 5.11.2025 22:30
Plata hermenn í hjónaband og hirða svo bæturnar Rússneskar konur plata menn sem skrá sig í herinn ítrekað til að kvænast þeim, svo þær geti fengið fúlgur fjár frá ríkinu ef og þegar þeir falla í átökum. Dómsmál hafa verið höfðuð vegna fjölda kvenna sem sakaðar eru um að gabba hermenn í hjónabönd en miklir peningar eru í húfi. Erlent 5.11.2025 18:48
Hver er Zohran Mamdani og hvað vill hann? Zohran Mamdani var í gær kjörinn borgarstjóri New York í Bandaríkjunum. Þegar hann tekur við embætti í byrjun næsta árs verður hann yngsti borgarstjóri New York frá 1892 en hann verður einnig fyrsti borgarstjórinn sem fæddist í Afríku og fyrsti músliminn til að sinna embættinu. Erlent 5.11.2025 17:07
Banna samtök íslamista og gerðu húsleit hjá fleiri Þýsk yfirvöld bönnuðu starfsemi samtaka íslamista á þeim forsendum að hún stríddi gegn mannréttindum og lýðræðislegum gildum í dag. Þá var húsleit gerð hjá tveimur öðrum hópum múslima. Erlent 5.11.2025 13:27
Evrópuríki ná saman um verulega útþynnt loftslagsmarkmið Bráðabirgðasamkomulag sem umhverfisráðherrar Evrópusambandsríkja náðu í morgun um loftslagsmarkmið sambandsins til ársins 2040 útvatnar verulega tillögu framkvæmdastjórnar þess. Þá samþykktu ráðherrarnir uppfært markmið fyrir 2035. Erlent 5.11.2025 09:22
Stofnar Facebook hóp fyrir hatur gegn sjálfum sér Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, hefur vakið athygli fyrir nokkuð óhefðbundna leið sem hann hefur ákveðið að fara til að mæta andstæðingum sínum. Þannig hefur Løkke stofnað sérstakan Facebook hóp sem hugsaður er sem vettvangur fyrir hatur gegn sjálfum sér. „Öll okkar sem hata Løkke“ er nafn hópsins sem er stjórnað af opinberum Facebook aðgangi ráðherrans. Erlent 5.11.2025 07:33
Sjö látnir eftir flugslysið í Kentucky Að minnsta kosti sjö eru látnir eftir að póstflutningavél frá UPS fór út af flugbraut sinni í Kentucky í Bandaríkjunum í gær og brann til kaldra kola. Erlent 5.11.2025 06:45
Tugir látnir eftir fellibyl á Filippseyjum Að minnsta kosti sextíu og sex eru látnir og hundruð þúsunda hafa þurft að flýja heimili sín á Filippseyjum eftir að einn öflugasti fellibylur ársins gekk yfir miðhluta eyjanna. Erlent 5.11.2025 06:43