Fastir pennar

Allir vara við þenslunni hér
Sendinefnd Alþjóða gjaldeyrissjóðsins telur þörf á meira aðhaldi í ríkisfjármálum.

Á ströndinni
Nú fer ég aldrei á söfn. Í mesta lagi hleyp ég inn til að skoða eina mynd. Ég vil vera auli á strönd. Það sem meira er – ég sé eftir því að hafa ekki verið ungur og sæmilega fallegur á strönd á þessum árum, sólbrúnn, í hörskyrtu og sandölum...

Evró-neikvæðir
Hér er fjallað um Heimssýn, samtök Evrópuandstæðinga á Íslandi, einkennilega ósamstæðan félagsskap sem þar nær saman, hugmyndafræðilegt allsleysi nei-sinnana í Evrópu, ferð til eyjarinnar Amorgos, matarboð með franskri kvikmyndastjörnu og ofát á kirsuberjum...

Ef alltaf eru jól verða aldrei jól
Mikil er vinnugleði landans. Allir sem vettlingi geta valdið vinna og vinna meira, dagvinnu, yfirvinnu og næturvinnu. Eitthvað hlýtur undan að láta því sólarhringurinn hefur ekki lengst og fólk hefur sífellt minni tíma fyrir fjölskyldu, vini og áhugamál.

Aldrei fleiri í háskólanám
Með fjölgun háskóla hefur háskólastúdentum fjölgað gífurlega. Háskólar verða að standa undir nafni með því að sýna árangur varðandi rannsóknir og framfarir í vísindum.

Fátæk ríki og skuldir þeirra
Iðnveldin átta undirbúa nú að gefa eftir skuldir margra fátækustu ríkja heims.

R-hópurinn
Innan ríkisstofnana og -fyrirtækja hefur óhindrað vaxið ótaminn vilji til valds. Þess vegna ríkisvæðist samfélag okkar miklu hraðar en tekst að einkavæða það.

Fugl sem ekki var hæna
Enn hefur íslenskt réttarkerfi ekki komist að niðurstöðu um það hvort umgengni Hannesar við texta Halldórs sé í lagi.

Að segja nei
Það er mikið talað um krísuna í Evrópusambandinu. Jú, þarna eru vissulega ákveðin vandamál. Menn virðast samt ekki átta sig alveg á því að í Evrópu ríkir velmegunarskeið, bæði pólitískt og efnahagslega. Álfan hefur aldrei verið svona frjáls. Það þarf ekki að fara nema þrjátíu ár aftur í tímann...

Lausn umferðarvandans?
Hér er fjallað um hugmyndir breska samgönguráðherrans Alistairs Darling sem ganga út á að settir verði sérstakir skynjarar í bifreiðar og ökumenn síðan skattlagðir eftir því hversu mikið þeir nota bílana. Er þetta frábær lausn á miklum umferðarvanda eða eftirlitssamfélag sem er gengið af göflunum? Plús smá um nýja sendiherra...

Þjóð í hafti
Á fáum áratugum var búið að hneppa þjóðfélagið í fjötra – Þjóð í hafti kallar Jakob það. Allt var háð skömmtun og leyfum. Í stórhýsi við Skólavörðustíg starfaði sérstök skömmtunarskrifstofa ríkisins. Fólk gat ekki ferðast til útlanda án þess að standa í endalausu gjaldeyrissnapi...

Græðgi er góð
Eigendum fyrirtækja er alls ekki skylt að leggja sitt af mörkum til menningar-, líknar- eða menntamála. Í frjálsu þjóðfélagi á enginn sjálfkrafa tilkall til eigna þeirra. Framsýni þeirra, dugnaður og afrek er þeim sjálfum að þakka. Ávinningur þeirra af frjálsum viðskiptum þýðir ekki tap annarra.

Og þjóðin svaf
Það ríður á því, að lög um einkavæðingu séu vandlega smíðuð með neyðarútgangi og öryggisventlum – og þjóðin vaki. Alþingi hefði þurft að byrgja brunninn, áður en bankarnir voru seldir

Læknadóp
Landlæknir hefur átalið nokkra lækna vegna ávísunar á morfín.

Samtalstækni stjórnmálanna
Það er tímabært að borgarstjórnarflokkarnir allir tali saman um skipulagsmál - og komist að niðurstöðu.

Hvað er að?
Hafrannsóknastofnun leggur til að þorskkvótinn verði innan við 200 þúsund lestir.

Besta stjórnkerfi fiskveiða?
Þegar ég vann sem fréttamaður á sjónvarpinu stuttan tíma fyrir næsum fimmtán árum datt ég óvart í að fjalla um sjávarútveg. Ég var aðal sjávaútvegsfréttamaðurinn um nokkurra mánaða skeið, líklega vegna þess að einhver fékk brjósklos. Þetta kom vel á vondan. Ég vissi ekkert um sjávarútveg...

Rotinn fótbolti
Hér er fjallað um fótboltaliðið Chelsea, svik, lygar og undirferli sem forráðamenn þess beita í sókn sinni eftir árangri, auðkýfinginn Roman Abramovits sem ríkir yfir landssvæðum bæði í Síberíu og á Englandi, en einnig er minnst á kosningarnar um stjórnarskrá ESB og knattspyrnuleik milli Grikkja og Tyrkja...

Hið fullkomna samfélag
Allt sem sérhvert hoppandi barn gerði var í órjúfanlegu, risastóru og síbreytilegu og lífrænu samhengi...

Vansköpuð borgarmynd
Skipulagsmál verða að öllum líkindum helsta kosningamál borgarstjórnarkosninganna á næsta ári. Það er innan við ár til stefnu, svo sem eins og fimmtíu vikur í pólitík. Og þær líða hratt.

Skipulagið snýst um mannlífið
Mikilvægt er að þeir sem setja fram stórhuga skipulagshugmyndir hafi bæði sjónarmiðin í huga, nýsköpun og nýbyggingar og verndun náttúru og minja. Þetta tvennt þarf að haldast í hendur. Engin sátt getur annars tekist um skipulagsmál.

Ruðningur og gjaldtaka
Sjávarútvegurinn er í vanda vegna þess hversu sterk krónan er. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, hefur bent á að það sé ekki bara krónan sem geri útgerðinni erfitt fyrir. Útvegurinn finnur mikið fyrir veiðileyfagjaldinu, einkum og sér í lagi rækjuvinnslan og rækjuveiðarnar.

Já, ráðherra
Hann hélt hindrunarlausa einræðu án þess að nokkur reyndi svo mikið sem að spyrja eins né neins. Eftir að ráðherrann hafði lokið sér af, var slökkt á græjunum og fréttastofurnar töldu sig vera með frétt á spólunum.

Við erum ekki laus við 1968
Erum við ekki að fá fram aðra velmegunarkynslóð ungs fólks sem hefur efni á að vera á móti stríði og lofsyngja ástina?

Vandi Samfylkingarinnar 2
Samfylkingin mun varla eiga nein skýr svör um stóriðjuna. Flokkurinn mun heldur ekki getað svarað tvímælalaust hver sé stefnan í öryggis- og varnarmálum. Kannski ekki heldur hver nákvæmlega sé stefnan varðandi einkavæðingu og einkarekstur....

Vandi Samfylkingarinnar
Nú er staðhæft að Ingibjörg Sólrún og Samfylkingin ætli að vinna með Vinstri grænum í ríkisstjórn. Það segir að minnsta kosti Mogginn. Blaðið birti langt og mikið Reykjavíkurbréf um þetta efni – eru þetta bara getsakir eða tilraun til að fá fram hreinni línur í pólitíkina?

Maó og hungrið mikla
Fyrir nokkrum dögum kom út ný ævisaga Maós eftir Jung Chang, höfund metsölubókarinnar Villtir svanir. Í bókinni er honum lýst sem hræðilegu skrímsli, valdasjúkum illvirkja, manni sem ber ábyrgð á dauða milljóna og aftur milljóna. Chang segir í viðtali við The Guardian að það séu 70 milljónir...

Krónan veikir landsbyggðina
Ein meginástæða hins háa gengis eru að mati hagspekinga stórframkvæmdirnar á Austurlandi og húsbyggingasprengjan á höfuðborgarsvæðinu.

Vinstri-slys og varnarleysi?!
Herstjórnarlistin sem við getum átt von á frá Sjálfstæðisflokknum á næstu misserum mun hljóma kunnuglega í eyrum margra. Slagorð um vinstri- hættur og varnarleysi munu taka að hljóma á ný og nýrri pólitískri stöðu verður mætt á stöðnuðum sagnfræðilegum forsendum.

Sextán milljarðar á silfurfati
Í löndum þar sem fyrirtæki hafa verið færð úr ríkiseigu í einkaeign undanfarin ár hafa víða verið sett sérstök lög til að tryggja,að einkavæðingin nái tilgangi sínum og rétt verð fáist fyrir eignirnar. Hér hafa engin slík ákvæði verið leidd í lög.