
Erlent

Vill sýna þinginu hver ræður
Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur á dögunum opinberað hverja hann ætlar að tilnefna í nokkur mikilvæg embætti í ríkisstjórn sinni. Þrjár af þessum tilnefningum eru umdeildari en aðrar og er Trump sagður mana þingmenn Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni til að standa í vegi sér.

Sprengdi sig upp fyrir utan hæstarétt Brasilíu
Karlmaður sem reyndi að komast inn í hús hæstaréttar í höfuðborg Brasilíu sprengdi sig í loft upp fyrir utan bygginguna í gærkvöldi. Aðeins fimm dagar eru þar til að leiðtogar G20-ríkjanna koma saman í Ríó de Janeiro.

Um 800 milljónir manna í heiminum með sykursýki
Fjöldi þeirra sem eru með sykursýki hefur tvöfaldast á síðustu 30 árum og telur nú um 800 milljónir manna. Fjórtán prósent af fullorðnum er nú með sykursýki, samanborið við sjö prósent árið 1990.

Vilja svipta Le Pen frelsinu og kjörgengi í fimm ár
Saksóknarar í París hafa farið fram á að Marine Le Pen, leiðtogi Þjóðfylkingarinnar í Frakklandi, verði dæmd í fimm ára fangelsi og útilokuð frá því að bjóða sig fram í opinbert embætti í fimm ár.

Tilnefning Gaetz sem dómsmálaráðherra vekur furðu og reiði
Ákvörðun Donald Trump að tilnefna þingmanninn Matt Gaetz sem dómsmálaráðherra hefur vakið mikla hneykslan og reiði vestanhafs. Gaetz sætti rannsókn siðanefndar þegar hann sagði af sér í gær í tengslum við tilnefninguna.

Repúblikanar með Hvíta húsið og allt þingið undir sinni stjórn
Repúblikanar munu vera með stjórn á Hvíta húsinu og báðum deildum Bandaríska þingsins. Þetta segir CNN sem lýsir því yfir að Repúblikanaflokkurinn hafi náð meirihluta í fulltrúadeildinni eftir kosningarnar í síðustu viku.

„Valdaskiptin munu ganga svo smurt fyrir sig“
Donald Trump, nýkjörinn og verðandi forseti Bandaríkjanna, fundaði með Joe Biden, sitjandi Bandaríkjaforseta, í dag í Hvíta húsinu, til að ræða komandi valdaskipti. Biden óskaði Trump til hamingju með sigurinn í kosningunum og bauð hann velkominn til baka í Hvíta húsið.

Melania Trump afþakkaði boð Jill Biden
Melania Trump, fyrrverandi og verðandi forsetafrú, ætlar ekki að fylgja Donald Trump eiginmanni sínum, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsið í dag. New York Times hefur eftir heimildarmanni með upplýsingar um ferðaplön forsetahjónanna verðandi.

Stefnir í hreinsanir innan Pentagon
Trump-liðar hafa skrifað drög af forsetatilskipun um að stofna „stríðsmanna-nefnd“ sem ætlað yrði að fara yfir störf bandarískra her- og flotaforingja og leggja til að reka þá sem þykja ekki störfum sínum hæfir. Nefndin yrðu skipuð fyrrverandi yfirmönnum í herafla Bandaríkjanna sem myndu senda tillögur til Trumps, sem hefur sagt þörf á að reka „woke“ bandaríska herforingja.

Ætlar að hætta áður en Trump rekur hann
Jack Smith, sérstakur saksóknari dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna, sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseta Bandaríkjanna, og ákærði hann, hefur ákveðið að ljúka störfum sínum og segja upp áður en Trump tekur við embætti á nýjan leik. Trump hefur heitið því að fyrsta verk hans í embætti verði að reka Smith.

Mikil fjölgun í aftökum Rússa á stríðsföngum
Ráðamenn í Úkraínu segja rússneska hermenn taka sífellt fleiri úkraínska stríðsfanga af lífi. Oft á tíðum hafi stríðsfangar verið skotnir til bana í návígi, eftir að þeir hafa verið teknir höndum og hafa Rússar jafnvel tekið sig upp taka menn af lífi og birt myndböndin á netinu.

Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn
Helstu mannréttindasamtök Hvíta-Rússlands segja að María Kolesnikova, einn forsprakka mótmæla gegn Viktor Lúkasjenka forseta, hafi fengið að hitta föður sinn. Henni hafði verið meinað um að eiga í samskiptum við fjölskyldu og vini í tuttugu mánuði.

Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur
Líkur eru á að íbúar í færeysku höfuðborginni Þórshöfn fái nýjan bæjarstjóra innan skamms eftir að vinstriflokkurinn Þjóðveldi nærri tvöfaldaði fylgi sitt í sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru í gær.

Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál
Justin Welby hefur greint frá því að hann hyggist segja af sér sem erkibiskup af Kantaraborg en hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að grípa ekki til aðgerða þegar honum var gert viðvart um stófelld kynferðis- og ofbeldisbrot John Smyth.

Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra
Donald Trump, fyrrverandi og verðandi forseti Bandaríkjanna, heldur áfram að vekja ugg með útnefningum sínum í hin ýmsu embætti en hann tilkynnti í gær að Pete Hegseth, sjónvarpsmaður hjá Fox News, yrði næsti varnarmálaráðherra landsins.

Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn
Dómstóll í Moskvu hefur dæmt 68 ára gamlan barnalækni í fimm og hálfs árs fangelsi fyrir að vanvirða rússneska herinn. Nadezhda Buyanova var sökuð af móðir barns sem hún hlúði að um að segja að Rússar gætu sjálfir sér um kennt vegna mannfalls í Úkraínu.

Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína
Að minnsta kosti 35 eru látnir og 43 særðir eftir að maður ók bíl á hópa fólks í borginni Zhuhai í Kína í gærkvöldi. Lögregluþjónar handtóku 62 ára gamlan mann vegna árásarinnar.

Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað
Rússneskur dómstóll hafnaði í gær áfrýjunarkröfu 32 ára konu sem dæmd var fyrir landráð í sumar. Ksenia Karelina var dæmd til tólf ára fangelsisvistar fyrir að gefa tæpar sjö þúsund krónur til góðgerðafélags fyrir Úkraínumenn, skömmu eftir innrás Rússa í Úkraínu.

Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps
Donald Trump, nýkjörinn forseti Bandaríkjanna, virðist ekki vera að sóa tíma við að skipa menn í ríkisstjórn sína. Á síðustu dögum hefur hann tilkynnt hverja hann vill í þó nokkur embætti og eru þó nokkrir þingmenn úr Repúblikanaflokknum þar á meðal.

Ganga til kosninga í febrúar
Þjóðverjar munu ganga til kosninga til sambandsþings þann 23. febrúar næstkomandi, eftir að atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu gegn ríkisstjórn Olaf Scholz, kanslara, fer fram í desember. Sú tillaga verður að öllum líkindum samþykkt.

Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi
Bandarískir flugmenn framkvæmdu í gær loftárásir á níu skotmörk tengd vígahópum á vegum íranska byltingarvarðarins í Sýrlandi. Yfirmenn herafla Bandaríkjanna á svæðinu segja árásirnar hafa verið gerðar vegna ítrekaðra árása á bandaríska hermenn í austurhluta Sýrlands.

Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu
Um það bil 75 prósent þolenda kynferðisofbeldis á Englandi og í Wales segja meðferð lögreglu á máli þeirra hafa valdið þeim andlegum skaða. Aðeins einn af hverjum tíu þolendum segist myndu tilkynna mál sitt að fenginni reynslu.

„Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon
Gideon Saar, utanríkisráðherra Ísrael, sagði í gær að „ákveðinn árangur“ hefði náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon. Talsmenn Hezbollah staðfesta að viðræður eigi sér stað en segja engar ákveðnar tillögur liggja fyrir að svo stöddu.

Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk
Yfirmenn rússneska hersins hafa safnað tugum þúsunda hermanna í Kúrsk-héraði í Rússlandi og eiga þeir að hefja umfangsmikla gagnsókn gegn Úkraínumönnum þar. Von er á umfangsmikilli sókn á næstu dögum.

Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“
Donald Trump, verðandi og fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur valið Elise Stefanik til að verða sendiherra hans gagnvart Sameinuðu þjóðunum. Stefanik situr í fulltrúadeild Bandaríkjaþings og hefur lengi verið einn ötulasti stuðningsmaður Trumps þar og kom hún til greina sem varaforsetaefni hans.

Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“
Leiðtogi ungversku stjórnarandstöðunnar sakar ríkisstjórn Viktors Orbán forsætisráðherra um að njósna um sig og aðstoðarmenn sína. Líkir hann hlerununum við Watergate-hneykslið sem felldi Richard Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseta.

Vill losna við tálma úr vegi sínum
Eftir að hafa tryggt sér Hvíta húsið og meirihluta í öldungadeildinni er útlit fyrir að Repúblikanar muni einnig enda með meirihluta í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Fari kosningarnar svo er fátt sem staðið getur í vegi Donalds Trump og stefnumálum ríkisstjórnar hans á næsta kjörtímabili en hann er þegar byrjaður að þrýsta á Repúblikana á þingi um að fjarlægja tálma úr vegi hans.

Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust
Olaf Scholz, kanslari Þýskalands, segist til í að efna til vantraustsatkvæðagreiðslu á þingi fyrr en hann hafði ætlað ef samstaða ríkir um það á meðal stjórnmálaflokkanna. Líkurnar á skyndikosningum snemma á næsta ári fara því vaxandi.

Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap
Shigeru Ishiba mun áfram gegna embætti forsætisráðherra Japans þrátt fyrir að flokkur hans, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, og stuðningsflokkar hafi misst meirihluta á þingi í þingkosningum sem fram fóru í lok október.

Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun
Donald Trump Bandaríkjaforseti er sagður hafa rætt við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í síma fyrir helgi.