Innlent

Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi

Ming Ting Mancel hefur verið dæmd í tólf ára fangelsi í Edition-málinu svokallaða. Hún var ákærð fyrir manndráp og brot í nánu sambandi, með því að verða 29 ára gamalli dóttur sinni að bana á hótelherbergi á Reykjavík Edition í miðbæ Reykjavíkur milli 13. og 14. júní í fyrra.

Innlent

Saka Kristján um að beita Land­helgis­gæslunni fyrir sig

Áfram siglir áhöfn hvalavina og aðgerðarsinna um borð í Bandero um utan tólf mílna lögsögunni og reynir að hafa uppi á hvalveiðiskipum Hvals hf. Skipverjar saka Kristján Loftsson um að setja þrýsting á Landhelgisgæsluna að hún beiti sér af óþörfu.

Innlent

Stór­slysa­leg fyrsta upp­lifun af landinu

Móðir April Dobbins og dóttir eru meðal þeirra sem lentu í miklum hremmingum á Keflavíkurflugvelli við komuna til landsins nú fyrir helgi. April segir móður sína, sem er á áttræðisaldri, hafa verið algjörlega búna eftir að hafa staðið í tveggja tíma röð í Leifsstöð.

Innlent

Hátt hlut­fall karl­manna á tvítugs­aldri á bótum

Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar var á línunni í Bítinu í morgun og upplýsti þar að óvenju margir ungir einstaklingar njóti fjárhagsaðstoðar á Suðurnesjum. Hann segir vísbendingar um að þetta sé ekki bara svona í Reykjanesbæ.

Innlent

Enn skelfur í Bárðar­bungu

Öflugur Jarðskjálfti varð í norðanverðri öskjunni í Bárðarbungu í morgun. Skjálftinn reið yfir þegar klukkuna vantaði um tuttugu mínútur í sex og mældist hann 5,2 stig.

Innlent

Senda norð­lenskt rusl úr landi

Íslenska gámafélagið opnaði fyrr á árinu stóra endurvinnslustöð á Akureyri þaðan sem sorp, sem áður var urðað, er sent til húsaupphitunar í Danmörku. Þá er gler notað í malbik.

Innlent

Stjórnlausir skógar­eldar og vertar sem fagna

Á fjórða hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda í Frakklandi og á Spáni. Evrópusambandið segir þetta eina umfangsmestu rýmingaraðgerð sem ráðist hefur verið í í álfunni. Í kvöldfréttum heyrum við í íslenskri konu sem þurfti að leita í fjöldahjálparstöð og fagstjóri hjá Veðurstofunni mætir í myndver og ræðir stöðu eldanna í beinni.

Innlent

Á þriðja hundrað þegar greitt at­kvæði

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar um það hvort Ísland eigi að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst í dag. Það sem af er degi hafa ríflega 250 manns greitt atkvæði hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu sem bendir til mikils áhuga þjóðarinnar á atkvæðagreiðslunni.

Innlent

Brot­lenti í djúpu gili

Aðstæður voru erfiðar þegar maður sem hrapaði í svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag var sóttur af Landhelgisgæslunni. Hann hafði brotlent í djúpu gili. Hann var með meðvitund þegar hann fannst.

Innlent

Varan­legar undan­þágur hluti af ESB frá upp­hafi

„Varanlegar undanþágur hafa verið hluti af ESB frá upphafi og það er ekkert í regluverki ESB eða neitt sem hefur breyst í stofnsáttmálum sem útilokar að hægt sé að ná varanlegum undanþágum eða ótímabundnum sérlausnum í aðildarsamningi.“

Innlent

Flug­maðurinn er fundinn

Björgunarsveitir og þyrla landhelgisgæslunnar voru kallaðar út til leitar og björgunar eftir að flugmanni svifvængs hlekktist á og hann varð viðskila við samferðamenn sunnan Mýrdalsjökuls. Hann hefur nú verið fluttur á Landspítalann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku.

Innlent

„Fólk er ekki heimskt“

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir nú góðan tíma fyrir inngöngu Íslands í Evrópusambandið en það njóti góðs af stöðu heimsmála. Hún segist hafa áhyggjur af gangi mála í Evrópu og að ásælni Bandaríkjaforseta í Grænland sé mikið áhyggjuefni. Markmiðið sé að fá já þann 29. ágúst en sjálf sé hún gagnrýnin á Evrópusambandið.

Innlent

Sorg­legt að ekki hafi tekist að vernda konuna

Karlmaður er í gæsluvarðhaldi vegna stórfelldrar líkamsárásar gagnvart sambýliskonu sinni. Árásina framdi hann daginn eftir að hafa verið dæmdur í fangelsi fyrir ofbeldi gagnvart sömu konu. Talskona Stígamóta segir heimild til nálgunarbanns stórlega vannýtta og sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna.

Innlent

Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki

Líklegast er að sólin muni leika við landsmenn á sunnan og vestanverðu landinu um Verslunarmannahelgina á meðan rigning er í kortunum í öðrum landshlutum. Þetta segir veðurfræðingur sem telur ólíklegt að spár fyrir helgina muni breytast mikið á næstu dögum.

Innlent

Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð

Skógareldar sem geisað hafa vestur af Madrídarborg á Spáni hafa brennt um 750 ferkílómetra svæði í Sierra Oeste-fjallgarðinum. Tugum þúsunda hefur verið gert að yfirgefa heimili sín, þeirra á meðal Hildur Kolbrún Andrésdóttir sem hefur varið helginni á fjöldahjálparstöð.

Innlent

Sauð upp úr milli ferða­manns og meintra vasaþjófa

Lögreglunni á Suðurlandi bárust tvær tilkynningar um vasaþjófnað um helgina. Þá varð einnig atvik við Skógafoss þar sem ferðamaður hnakkreifst við meinta vasaþjófa, hrifsaði af þeim síma og kastaði honum út á tún. Lögreglumaður á Suðurlandi segir það reglulegt orðið að tilkynningar berist um vasaþjófnað.

Innlent

Lilja Rafney syrgir eigin­mann sinn

Hilmar Oddur Gunnarsson, vörubifreiðastjóri og sjómaður frá Suðureyri, er látinn 72 ára að aldri. Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Flokks fólksins og eiginkona Hilmars, greinir frá andláti eiginmanns síns í færslu á Facebook.

Innlent

Fluttur til Dan­merkur með al­var­leg bruna­sár

Karlmaður hefur verið fluttur með alvarleg brunasár á sérhæfðan brunaspítala í Kaupmannahöfn vegna atviks sem kom upp í flöskumóttöku Grænna skáta í Hraunbæ í Reykjavík síðastliðinn föstudag. Maðurinn var starfsmaður þar.

Innlent