Innlent

Vill fækka borgar­full­trúum um átta

Borgarstjórn Reykjavíkur hefur skorað á Alþingi að leyfa sveitarfélögum að ráða fjölda kjörinna fulltrúa sjálf. Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill fimmtán borgarfulltrúa aftur og sér ekki að fjölgun þeirra í tuttugu og þrjá hafi bætt málefni borgarinnar.

Innlent

Fjár­mála­ráð­herra flautaður niður af sviði

Hávært flaut batt enda á ræðu Daða Más Kristóferssonar, fjármálaráðherra, á fjármálaráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga í morgun. Hann fullvissaði viðstadda um að flautið væri ekki leið forystu sambandsins til þess að koma honum af sviðinu.

Innlent

Krist­rún reyni að hafa milli­göngu í deilunni

Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga.

Innlent

Kjaravaktin: Sam­komu­lag í höfn á elleftu stundu

Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt.

Innlent

Á­reitti tíu ára stúlku í­trekað í fjóra daga

Karlmaður hefur verið ákærður fyrir kynferðislega áreitni í garð tíu ára stúlku, með því að senda henni ítrekað kynferðislegar myndir af sér og biðja stúlkuna um að senda myndir og myndbönd af líkama og kynfærum sínum.

Innlent

Kveikja og slökkva á ljósa­staurum vegna bilunar

Víðtæk bilun varð á ljósastaurum víða á höfuðborgarsvæðinu um áttaleytið í gærkvöldi. Samkvæmt svörum frá Veitum er um að ræða bilun í ljósnema sem nemur birtustigið úti. Samkvæmt svari átti að taka hann úr rekstri um áramótin. Hann verður gerður óvirkur fyrr og verður ljósunum handstýrt þar til nýtt kerfi er komið í notkun.

Innlent

Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“

„Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag.

Innlent

Ráð­herra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðar­fjall

Eigendur jarðarinnar Eiðis á Langanesi hafa í hálfa öld staðið í baráttu fyrir því að mengun eftir herstöðina á Heiðarfjalli verði hreinsuð upp. Á ýmsu hefur gengið, meðal annars varð ráðherra svo reiður vegna erindis þeirra að hann lét henda þeim út af ráðherraskrifstofunni. Þeir ætla samt ekki að gefast upp.

Innlent

Sam­þykktu að slíta kjara­samningum

Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum.

Innlent

Niður­rif hafið á Laugasól

Niðurrif á leikskólanum Laugasól við Leirulæk í Laugardal hófst fyrr í þessum mánuði. Ákveðið var í nóvember árið 2024 að rífa leikskólann en verkið var ekki boðið út fyrr en í sumar. Ekki liggur fyrir endanleg hönnun á nýjum leikskóla né hvenær framkvæmdir geta hafist. 

Innlent

„Von­brigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“

Formaður grænlensku landstjórnarinnar segir það svekkjandi að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kúlusúk á Austur-Grænlandi yfir vetrartímann enda hafi flugleiðin reynst vel upp á ferðamennsku og fraktflutninga á ferskvöru. Hann segir að landstjórnin leiti nú leiða til þess að tryggja flug að svæðinu á ný.

Innlent

Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls

Allar tiltækar stöðvar slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu voru ræstar út að Hringbraut í kvöld þar sem kviknað hafði í rafmagnshlaupahjóli á stigagangi í íbúðarhúsnæði.

Innlent

Serbar á Ís­landi mót­mæla: „Það er ósann­gjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“

Serbar á Íslandi segja serbnesk stjórnvöld meina þeim að opna kjörstað og þannig koma í veg fyrir að þeir geti nýtt kosningarétt sinn í þingkosningum sem fara fram síðar í október. Samkvæmt lögum eigi aðeins að þurfa 100 undirskriftir og viðeigandi húsnæði til að opna kjörstað. Það hafi allt verið til en stjórnvöld í Serbíu hafi hafnað umsókn þeirra og vísi þeim á að fara í næsta sendiráð að kjósa, sem er í Osló.

Innlent

Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni

Laganemar við Háskóla Íslands veita um þessar mundir ókeypis lögfræðiaðstoð auk þess sem þeir halda úti svokallaðri leigjendalínu. Formaður Orators segir starfið gefandi, enda frískandi að prófa eitthvað nýtt á milli þess sem menn sitja yfir bókum. Fólk hringi inn með alls konar vandamál; sumir kvarti vegna erfiðra leigusala og einn innhringjandi hafi haft samband þegar sambýliskonan reyndist vera gift öðrum manni.

Innlent

Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara

Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú félagsins Heklarar ehf, sem námu tæplega 27 milljónum króna. Félagið rataði í fréttir í desember í fyrra þegar fjallað var um smygl á 5,6 kílóum á kókaíni. Í janúar var eigandi félagsins dæmdur í 3,5 ára fangelsi fyrir smyglið ásamt kærasta sínum og þriðja manni. Fyrir dómi sagði kærastinn að kærasta sín hefði í raun verið leppur fyrir hann.

Innlent

„Við erum að gefa boltann upp“

Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál.

Innlent

Þétta sam­starfið í út­norðri

Ísland, Færeyjar og Grænland hyggjast efla viðskiptasamstarf sín á milli en leiðtogar vestnorrænu landanna sátu í dag hringborð með fjárfestum á Norður-Atlantshafi. Þetta er í fyrsta sinn sem leiðtogarnir landanna hittast gagngert í einu landanna til að funda.

Innlent

„Við erum til­búin að skoða lengingu skóla­ársins“

Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf.

Innlent

Sver af sér á­byrgð á rann­sókn um karl­mennsku

Jafnréttisstofa segist hvorki hafa borið ábyrgð á rannsóknarhönnun né lokaskýrslu umdeildrar rannsóknar sem unnin var af alþjóðlegu hugveitunni Equimundo að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar um hugmyndir norrænna karla um karlmennsku. Íslenskir fræðimenn hafa gagnrýnt rannsóknina og sagt að setja verði fyrirvara við niðurstöður hennar sem virtust benda til þess að hugmyndir íslenskra karla væru íhaldssamari en annarra norrænna karla.

Innlent

Bílvelta á Vestur­lands­vegi

Bíll valt á Vesturlandsvegi við Bauhaus síðdegis í dag í kjölfar áreksturs. Stefán Már Kristinsson, varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir ekki mikil slys á fólki. Nokkrar umferðartafir voru á meðan bílunum var komið af veginum. Búið er að opna fyrir umferð.

Innlent