Innlent
4 5 6 7 8 9 10 11 12 … 334 ›
Segir engan hafa sagt neitt fyrr en nágranni fór í stríð við ísbúðina Framkvæmdastjóri Skúbb Ísgerðar hefur kært ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að honum sé skylt að fjarlægja ljósaskilti sem er við ísbúð Skúbb, sem er við Laugarásveg í Reykjavík. Í kærunni segir að nágranni heyi stríð gegn ísbúðinni. Innlent 17.12.2024 15:59
Tugir milljóna króna beint til formanns FH Um fjörutíu prósent af byggingarkostnaði við knatthúss íþróttafélagsins FH fór í greiðslur til formanns félagsins og fyrirtækja sem bróðir hans er í forsvari fyrir. Spurningar eru uppi um hvort að allt að 120-130 milljónir hafi verið réttilega færðar sem hluti af byggingarkostnaðinum. Innlent 17.12.2024 14:22
Endurbætur hefjist nú ekki fyrr en í fyrsta lagi 2031 Ekki verður hafist handa við endurbætur á innilaug Sundhallar Reykjavíkur fyrr en í fyrsta lagi árið 2031. Upphaflega stóð til að endurbætur hæfust vorið 2023 og átti þeim að vera lokið 2025. Innlent 17.12.2024 14:16
Reiknar með að hefja aftur störf á föstudag Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari gerir ráð fyrir því að mæta aftur til starfa á föstudag. Hann hefur ekki mætt til vinnu síðan í lok júní þegar ríkissaksóknari afþakkaði vinnuframlag hans og óskaði eftir því við dómsmálaráðherra að Helgi Magnús yrði leystur tímabundið frá störfum. Dómsmálaráðherra varð ekki við þeirri beiðni. Innlent 17.12.2024 12:11
Sendu Europol ábendingu um hatursorðræðu á íslenskum síðum Greiningardeild Ríkislögreglustjóra sendi ábendingu til Europol í tengslum við átak gegn hatursorðræðu. Ábendingin beindist að íslenskum síðum á samfélagsmiðlum. Innlent 17.12.2024 11:55
Vinna hafin við stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar Í hádegisfréttum fjöllum við áfram um myndun nýrrar ríkisstjórnar. Innlent 17.12.2024 11:43
Vinna við skrif stjórnarsáttmála hafin Formenn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins vinna nú að því að skrifa nýjan stjórnarsáttmála ríkisstjórnar. Innlent 17.12.2024 10:31
„Laun og kjör eru ekki það sama“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, segir gott að það sé verið að ræða mun á launum og kjörum opinberra starfsmanna og þeirra sem starfa í einkageiranum. Það sé þó áríðandi að það hafi allir sömu gögn og séu að bera saman sömu hlutina. Umræðan sé ekki á þeim stað í dag. Það þurfi að leggja áherslu á að finna sameiginlegan stað fyrir alla til að standa á. Innlent 17.12.2024 09:07
Tæknifólk skrifaði undir kjarasamning til fjögurra ára Nýr kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og Rafiðnaðarsamband Íslands/Félags tæknifólks vegna tæknigreina var undirritaður hjá ríkissáttasemjara eftir hádegið í gær. Við samninginn voru gerðir viðaukar sem ná til fimm fyrirtækja. Innlent 17.12.2024 07:47
Segir hótunum beitt í stað lagalegra leiða Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri SVEIT, Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, sakar Eflingu um að beita hótunum og að henda fram ósannindum í umræðuna í stað þess að leita lagalegra leiða til að koma í veg fyrir að SVEIT semji við stéttarfélagið Virðingu. Efling segir Virðingu gervistéttarfélag og samning SVEIT og Virðingar að engu hafandi. Innlent 17.12.2024 07:15
Segir fæsta spyrja að því hvað sé best fyrir börnin Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, virðist gefa lítið fyrir áform um aukna aðkomu atvinnulífsins að leikskólamálum. Hugsanavilla virðist vera í gangi um að einkafyrirtækjum muni ganga betur en hinu opinbera að laða til sín kennara og fæstir spyrji að því hvað sé best fyrir sjálf börnin. Innlent 17.12.2024 06:44
Flygildin hvorki á vegum Kínverja né geimvera Logi Bergmann, fjölmiðlamaður og eiginmaður sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, segir það ólíklegt að dularfull flygildi sem skotið hafa upp kollinum í skjóli nætur í New Jersey-ríki séu í heimsókn frá öðrum hnetti. Innlent 16.12.2024 22:50
„Bíðum í ofvæni eftir veðurspá næstu daga“ Snjór þekur nú götur og stræti á höfuðborgarsvæðinu og víðar. Skrifstofustjóri borgarlandsins segir vetrarþjónustu hefjast í borginni í fyrramálið og að beðið sé í ofvæni eftir veðurspá næstu daga. Innlent 16.12.2024 21:16
Áhöfn Þórs bjargaði hval sem festist í legufæri Áhöfnin á varðskipinu Þór bjargaði hval sem hafði fest sig í legufæri norður af Viðey á sjötta tímanum í dag. Tilkynning barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar í gærkvöld og um miðnætti var séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar send til að kanna málið. Innlent 16.12.2024 20:55
Kindurnar eru miklu skemmtilegri en sætir strákar Sautján ára stelpa á Stokkseyri elskar ekkert meira en íslensku sauðkindina enda er hún með um 100 fjár með pabba sínum í þorpinu. Ærin Djásn er í sérstöku uppáhaldi hjá henni. Innlent 16.12.2024 20:04
Um fimm þúsund fá aðstoð fyrir jólin Félagsráðgjafi með tuttugu ára reynslu af hjálparstarfi dáist að seiglu og útsjónarsemi sem fátækt fólk þarf að sýna um hver mánaðarmót til að lifa af. Jólin reynast þessum hópi oft erfið og aðstoðar Hjálpastarf kirkjunar hátt í fimm þúsund manns sérstaklega í desember. Innlent 16.12.2024 19:25
Sjö börn liggja inni en ekkert á gjörgæslu Sjö börn liggja inni á barnaspítalanum vegna þungs faraldurs RS-veiru. Ekkert barn er þó á gjörgæslu. Fjölmörg börn hafa verið lögð inn á barnaspítalann og þar af hafa nokkur þurft að fara á gjörgæslu. Innlent 16.12.2024 19:16
Uppsagnarbréf á jóladag það eina sem hélt vatni fyrir dómi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag atvinnurekanda til að greiða fyrrum launþega sínum, matreiðslumanni, 1,4 milljónir króna vegna vangoldinna launa og orlofs. Innlent 16.12.2024 19:11
Ósanngjarnt að börn hafi úrslitavald Kennari við Kársnesskóla skorar á fulltrúa í menntaráði og bæjarstjórn Kópavogs að endurskoða þá ákvörðun að láta nemendur skólans frá fyrsta upp í tíunda bekk velja nafn á þá nýju skóla sem verða til við skiptingu Kársnesskóla í tvennt. Innlent 16.12.2024 18:49
Fyrirtækjaleikskólar innleiði mismunun og stéttaskiptingu í menntakerfið Kennari og bæjarfulltrúi í Garðabæ segir að áform fyrirtækja á borð við Alvotech og Arion banka að koma á fót leikskólum og dagvistunarúrræðum á höfuðborgarsvæðinu séu til þess fallin að innleiða mismunun og stéttaskiptingu í menntakerfið. Innlent 16.12.2024 18:14
Erfið jól, vertíð og heit ást á sauðkindinni Félagsráðgjafi með tuttugu ára reynslu af hjálparstarfi dáist að seiglu og útsjónarsemi sem fátækt fólk þarf að sýna um hver mánaðarmót til að lifa af. Jólin reynast þessum hópi oft erfið og aðstoðar Hjálpastarf kirkjunnar hátt í fimm þúsund manns sérstaklega í desember. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 16.12.2024 18:01
„Allt er reynt til að komast í gegn um landamærin“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir viðbúið að mistök séu gerð í baráttunni við erlenda glæpahópa sem reyni stöðugt að styrkja stöðu sína hér á landi. Á áttunda hundrað hefur verið vísað frá landinu á árinu sem grunuð eru um að sigla undir fölsku flaggi. Innlent 16.12.2024 14:14
Landspítala falið að undirbúa nýtt meðferðarúrræði Lagt er til að Landspítala verði falið að hefja undirbúning að nýju úrræði fyrir fólk með alvarlegan og langvinnan ópíóíðavanda í skýrslu starfshóps um skaðaminnkun. Fulltrúi í hópnum segir þetta geta nýst tugum sem hafa ekki náð árangri í hefðbundnum meðferðum. Innlent 16.12.2024 14:02
„Ég elska jólin, börnin og lífið en þetta er of mikið“ Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona veltir fyrir sér hvort hún sé nokkuð ein um að ná ekki utan um allt sem skólinn, frístund og tómstundir bjóði upp á í aðdraganda jólanna. Hún elski auðvitað börnin sín og jólin en sé hreinlega að drukkna. Innlent 16.12.2024 13:22
Krefjast þess að faðir þeirra verði úrskurðaður látinn Börn Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rétt tæpu ári, hafa krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að ákveðið verði með dómi að faðir þeirra sé talinn látinn. Innlent 16.12.2024 12:58
Talsverðar líkur á hvítum jólum Jólasnjór hylur nú götur á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land nú þegar átta dagar eru til jóla. Og þá er ekki úr vegi að spyrja veðurfræðing hvort jólin verði hvít eða rauð í ár, spár liggja fyrir. Innlent 16.12.2024 12:02
Leggja til ný úrræði í skaðaminnkun Í hádegisfréttum fjöllum við um tillögur starfshóps um úrræði fyrir þá sem eru langt leiddir af ópíóðanotkun. Innlent 16.12.2024 11:38
Telur Sigurð Inga hafa misnotað umboð sitt Landvernd segir Sigurð Inga Jóhannsson fjármála- og innviðaráðherra hafa misnotað umboð sitt með því að staðfesta svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið næstu tuttugu árin. Um sé að ræða stefnumarkandi mál sem óeðlilegt sé að starfsstjórn keyri áfram í tómarúmi. Innlent 16.12.2024 11:14
Orkuverð til bænda hafi allt að tvöfaldast Gunnlaugur Karlsson, forstjóri Sölufélags garðyrkjumanna, segir raforkuverð til garðyrkjubænda hafa hækkað um allt að hundrað prósent á örfáum árum. Haldi þróunin áfram gætu bændur lagt upp laupana. Innlent 16.12.2024 09:11
Sagðist vera vopnaður og ruddist inn Lögregla sinnti útkalli í gærkvöldi eða nótt vegna manns sem hafði sagst vera vopnaður og ruðst inn í íbúð. Hann var handtekinn í íbúðinni en reyndist óvopnaður. Innlent 16.12.2024 06:45