Innlent „
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 334 ›
„Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að beiting rafvarnarvopns við aðstæður sem uppi voru við handtöku í Keflavík í gær sé varasöm og fullyrðir að engin réttarspjöll verði þó vitni að atvikinu hafi verið gert að eyða myndbandi af handtökunni. Innlent 19.5.2026 12:29
Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Karlmaður sem ákærður er fyrir hlutdeild í meintu umsáturseinelti Írisar Helgu Jónatansdóttir neitar sök. Innlent 19.5.2026 12:02
Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Eldur kviknaði í litlum skúr við einbýlishúsi í Bjarmalandi í Fossvogi í Reykjavík laust fyrir klukkan 11:30. Eldurinn hefur þegar verið slökktur en slökkvilið er að störfum við að tryggja að hann hafi ekki læst sér í þak hússins. Innlent 19.5.2026 11:49
Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna Í hádegisfréttum fjöllum við um handtöku sem framkvæmd var í Reykjanesbæ í gær þar sem lögreglumenn beittu rafbyssu á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni. Innlent 19.5.2026 11:44
„Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Hildur Dís og Hjalti eru bæði með meltingarsjúkdóm sem getur valdið því að þau þurfa að fara á salernið með stuttum fyrirvara. Bæði greindust þau nokkuð ung en afleiðingar sjúkdómanna eru ólíkar. Hjalti er til dæmis bestur á einföldu mataræði en bæði segja þau streitu og álag verulegan áhrifavald. Innlent 19.5.2026 10:12
Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Vegagerðin varar við því að í dag frá klukkan níu og fram til klukkan átta í kvöld verður unnið að vegaframkvæmdum á um 900 metra kafla á Hringveginum austan við hringtorgið í Hveragerði. Innlent 19.5.2026 07:17
Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Aðeins rúmu prósentustigi skeikaði að meðaltali á skoðanakönnunum og úrslitum í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Stærðfræðingur segir kannanirnar hafa verið sögulega nákvæmar í ár. Innlent 19.5.2026 07:03
Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Kona sem var starfsmaður á leikskóla hefur verið ákærð fyrir líkamsárásir og brot gegn barnaverndarlögum en hún er sögð hafa slegið son sinn og dreng á leikskólanum í andlitið. Innlent 19.5.2026 06:20
Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur segir allt stefna í nýtt eldgos á Sundhnúksgígaröðinni. Margir aðrir möguleikar séu þó í stöðunni, eins og að annað eldstöðvakerfi taki við, þar á meðal Krýsuvíkurkerfið. Innlent 18.5.2026 22:10
Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð hafa ákveðið að hefja formlegar meirihlutaviðræður um áframhaldandi samstarf flokkanna á komandi kjörtímabili. Flokkarnir töpuðu báðir verulegu fylgi milli kosninga, en meirihlutinn hélt samt velli. Innlent 18.5.2026 21:33
„Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segist aðallega velta fyrir sér meirihlutasamstarfi með Miðflokki annars vegar eða Viðreisn og Framsókn hins vegar. Hún hefur rætt við alla kjörna oddvita í dag en kveðst ekki hafa tekið ákvörðun. Nú ætli hún að tala við sitt fólk um stöðuna sem upp er komin. Innlent 18.5.2026 19:51
Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Ökumaðurinn sem lögreglan stöðvaði för í gærkvöld var mældur á allt að 200 kílómetra hraða á klukkustund. Lögreglan stöðvaði för hans með því að kasta út naglamottu. För ökumannsins lauk þegar hann ók aftan á aðra bifreið á afrein að Breiðholtsbraut. Tvennt var í bílnum sem hann ók á og voru þau flutt á sjúkrahús með minniháttar áverka. Pilturinn var einnig fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka og bíður nú lögregla eftir að geta yfirheyrt hann. Innlent 18.5.2026 19:14
Hildur í beinni um þreifingar dagsins Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og ótvíræður sigurvegari kosninganna í borginni, fundaði í dag með oddvitum allra flokka sem náðu inn manni í borgarstjórn. Við ræðum við Hildi í beinni í kvöldfréttum og heyrum allt um fundarhöld dagsins. Þá mætir stjórnmálafræðingurinn Gunnar Sigurðarson í myndver og fer yfir kostina sem eru í stöðunni og bláu bylgjuna sem reið yfir landið á laugardag. Innlent 18.5.2026 18:07
Lögreglu hafi stafað hætta af manninum Yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurnesjum segir lögreglumenn hafa tekið upplýsta ákvörðun þegar þeir ákváðu að beita rafvarnarvopni gegn manni sem þakinn var íkveikivökva í morgun. Þá hafi manni verið gert að eyða myndefni af atvikinu í þágu hagsmuna þess sem beittur var rafvopninu, enda hafi hann verið án fata. Innlent 18.5.2026 16:59
„Níð“ Kjartans og Mörtu gæti sett strik í reikninginn Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra Sjálfstæðisflokksins og frambjóðandi í Reykjavíkurborg, segir í pistli að örðugt gæti reynst fyrir Hildi Björnsdóttur oddvita Sjálfstæðismanna, að ganga til meirihlutasamstarfs við Miðflokkinn í ljósi þess hvernig þau Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir létu í aðdraganda kosninga. Innlent 18.5.2026 16:10
Gerviraddir notaðar til að svíkja af Íslendingum fé Lögregla varar við því að erlendir netsvikarar noti talgervil, sem breytir íslenskum texta í tal, til að blekkja fólk í gegnum síma og svíkja af því fé. Innlent 18.5.2026 15:53
Guðmundur Árni hættir í pólitík: „Ég er enginn moðsuðumaður“ Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar og oddviti Hafnarfjarðar, hefur ákveðið að stíga til hliðar og hætta í pólitík. Hann gerir því skóna að nýr varaformaður flokksins verði valinn á næstunni á flokksráðsfundi. Innlent 18.5.2026 14:46
Birta umhverfismat vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar HMS stefnir á að birta álit sitt á umhverfismati vegna Sundabrautar fyrir lok þessa mánaðar. Vegna umræðu um tafir sem orðið hafa á umhverfismati Sundabrautar vill HMS árétta að tímarammi umhverfismatsins er á forræði framkvæmdaraðila. Framvinda málsins ræðst af því hvenær hann leggur fram gögn til yfirferðar HMS. Innlent 18.5.2026 14:40
Látinn eyða myndskeiði: „Ekki standa þarna eins og gungur, hjálpið manninum“ Maður sem varð vitni að afskiptum lögreglu af manni við Keflavíkurkirkjugarð í morgun, sem endaði með því að kviknaði í manninum, segir beitingu lögreglu á rafvarnarvopni fáránlega, þar sem maðurinn hafi verið búinn að hella á sig íkveikivökva. Þá hafi lögregla neytt hann til að eyða myndskeiði af atvikinu með hótunum um handtöku. Innlent 18.5.2026 14:39
Bein útsending: Opinn nefndarfundur um samgöngur til Eyja Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis hefur boðað til opins fundar í dag til að fjalla um stöðu samgangna til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar. Eyjólfur Árnason innviðaráðherra verður gestur fundarins, sem hefst klukkan 15. Innlent 18.5.2026 14:31
Samfylkingin í Reykjavík þurfi að byggja aftur upp traust Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir ljóst að Samfylkingin þarf að byggja upp traust á ný í Reykjavík. Samfylkingin hafi hlotið næstmest fylgi á landsvísu og flokkurinn hafi fjölgað fulltrúum í sveitarstjórnum. Það sé samt sem áður alvarlegt að fjöldi jafnaðarmanna hafi kosið aðra flokka. Innlent 18.5.2026 13:01
Missti af tíma hjá lækni vegna umferðarteppu Guðmundur Oddgeirsson vegfarandi segist nú hafa verið fastur í bílalest á Þjóðvegi 1 í 45 mínútur. Hann er búinn að missa af tíma hjá lækni en hann er að koma í borgina frá Þorlákshöfn. Hann er ósáttur. Innlent 18.5.2026 12:08
„Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Rútubílstjóri sem varð vitni að ofsaakstri á Reykjanesbraut í gærkvöldi segir bílinn hafa verið á svakalegri ferð. Sá hann þegar lögregla hóf eftirför en henni lauk við Breiðholtsbraut með árekstri þar sem tveir bílar enduðu utan vegar. Innlent 18.5.2026 12:08
Meirihlutamyndanir að hefjast víða um land Meirihlutaviðræður eru hafnar á þó nokkrum stöðum, meðal annars á Akureyri og í Skagafirði, þar sem útlit er fyrir að Framsóknarflokkurinn verði ekki í meirihluta í fyrsta sinn um árabil. Oddviti Framsóknar segir tíðindin koma sér í opna skjöldu. Innlent 18.5.2026 12:02
Hildur fundar með öllum og ekkert gefið upp Oddviti Sjálfstæðisflokksins mun í dag funda með oddvitum allra framboða sem náðu fulltrúa inn í borgarstjórn. Prófessor í stjórnmálafræði segir Hildi Björnsdóttur með öll tromp á hendi og standa frammi fyrir pólitísku vali um meirihluta í íhalds- eða frjálslyndisátt. Innlent 18.5.2026 12:02
„Ökufanturinn“ piltur undir tvítugu Ökumaðurinn sem lögregla eltist við á ofsahraða á Reykjanesbraut í gærkvöldi er piltur undir tvítugu. Innlent 18.5.2026 11:46
Rýnt í mögulega meirihluta í Reykjavík Í hádegisfréttum verður rætt við prófessor í stjórnmálafræði um stöðuna í Reykjavík eftir borgarstjórnarkosningarnar um helgina. Innlent 18.5.2026 11:39
Malbika seinni akreinina að nóttu til á Suðurlandsvegi G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir seinni akrein á Suðurlandsvegi verða malbikaða að nóttu til. Miklar tafir eru á Suðurlandsvegi í dag en unnið er að fræsingu og malbikun á Suðurlandsvegi við Hólmsá. Innlent 18.5.2026 11:38
Kveikti í sér eftir að hafa verið beittur rafvarnarvopni Karlmaður bar að sér eld í Reykjanesbæ í morgun eftir að lögregla hafði beitt hann rafvarnarvopni. Innlent 18.5.2026 11:38
Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli. Innlent 18.5.2026 11:15