Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Í deilumálum er betra að halda ró sinni. Vertu ekki of ákafur í skoðunum. Vandamálið sem þú hefur velt lengi fyrir þér leysist af sjálfu sér.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Eitthvað spennandi liggur í loftinu. Þú verður vitni að einhverju ánægjulegu sem breytir hugarfari þínu í garð einhvers.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú þarft að sýna lipurð í samskiptum við félaga þína, annars er hætta á að það sjóði upp úr. Eitthvað óvænt gerist seinni hluta dagsins.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Verkefni sem þú átt fyrir höndum veldur þér talsverðum áhyggjum. Það reynist þó óþarfi þar sem allt gengur mjög vel þegar á reynir.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Vinur þinn kemur í heimsókn til þín í dag og þið eigið saman gott og þarft spjall. Heimilslífið verður að einhverju leyti óvenjulegt og skemmtilegt.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þú þarft að fara varlega í fjármálum og forðast alla óhóflega eyðslu. Ef þú ert sniðugur getur þú loksins látið gamlan draum rætast.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Taktu vel eftir því sem fólk segir við þig og ekki bregðast trausti vina þinna. Misskilningur gæti komið upp í vinnunni en hann verður leiðréttur.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú ættir að finna þér nýtt áhugamál. Það gæti hleypt nýju lífi í tilveruna hjá þér. Þú verður fyrir óvæntu happi í fjármálum.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þú gætir mætt kröftugum mótmælum við uppástungum þínum. Svo öflugum að þú hættir við áætlanir þínar. Ekki láta slá þig út af laginu.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þú ættir að eyða meiri tíma með fjölskyldunni. Hugleiddu ráð sem þér voru gefin fyrir stuttu, ef til vill segja þau mikið um persónuna sem gaf þau.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Varaðu þig að sökkva ekki sjálfum þér í sjálfsvorkunn og kenna öðrum um það sem miður fer. Líttu í eigin barm og reyndu að gera eitthvað í málunum.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þetta er góður tími fyrir viðskipti og öflugt félagslíf. Það er mikill kraftur í þér þessa dagana og reyndu að virkja hann til góðs.

Menning

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Andrúmsloftið er fremur þægilegt og einhugur ríkir milli manna. Tilfinningamálin verða rædd og ætti það að hafa góð áhrif.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Samvinna skilar góðum árangri í dag en samt sem áður gengur þér eins vel, ef ekki betur, að vinna í einrúmi. Þú tekur þátt í skemmtilegum rökræðum.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ástarmálin taka mikið af tíma þínum. Það lítur út fyrir að eitthvert ósætti komi upp en það jafnar sig sennilega fljótt.

Menning