Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þér er óhætt að treysta vini þínum í sambandi við vanda sem þú ert í á tilfinningasviðinu. Hann getur án efa gefið þér góð ráð.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú stendur í stórræðum á viðskiptasviðinu. Svo virðist sem fasteignakaup eða eitthvað álíka sé á döfinni. Þú ert í essinu þínu.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Tvíburar fara varlega í að opinbera tilfinningar sínar en það getur verið nauðsynlegt til að allir átti sig á hvað um er að vera.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þú verður að gæta þess að særa engan með framagirni þinni. Þó að þú hafir mikinn metnað verður þú líka að taka tillit til annarra.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Fjölskyldan stendur þétt saman og skipuleggur framtíðina. Félagslífið tekur líka sinn toll og þú hefur í nógu að snúast.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú leysir vel af hendi verk sem þér er sett fyrir í vinnunni en það gæti gengið illa að leysa ágreiningsmál heima fyrir.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Dagurinn hentar vel til viðskipta, sérstaklega ef þú ert að fjárfesta eða selja á nýjum vettvangi.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Rómantíkin blómstrar á næstu dögum en þú skalt vera á verði og gæta þess að særa ekki tilfinningar annarra.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Það verða miklar framfarir á einhverjum vettvangi í dag. Peningamálin valda þér samt einhverjum áhyggjum og erfiðleikum.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Gerðu þér far um að koma vel fyrir og vandaðu þig í samskiptum við annað fólk. Þú munt fá það margfalt endurgreitt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Fyrri hluti dagsins kemur þér á óvart. Þú þarft að glíma við óvenjulegt vandamál. Þú verður þreyttur í kvöld og ættir að taka það rólega.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Gamalt mál, sem þú varst að vona að væri gleymt, skýtur upp kollinum að nýju og þú kemst ekki hjá því að taka afstöðu þó að þér sé það þvert um geð.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þeir sem eru ástfangnir eiga góðar stundir og ekki kemur á óvart þó að einhvers staðar verði borin upp bónorð á rómantísku kvöldi.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þú veltir þér einum of mikið upp úr vandamálum þínum eða einhvers þér nákomins. Ef þér tekst að hvíla þig einhvern hluta dagsins gengur allt miklu betur.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Reyndu að eiga stund fyrir sjálfan þig, þú þarfnast hvíldar eftir erfiðið undanfarið.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Ástarlífið blómstrar um þessar mundir. Er meðan er og ekki láta óþarfa áhyggjur af framtíðinni skemma þessar góðu stundir.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú ferð á fjarlægar slóðir og kynnist nýjum háttum og siðum. Þú vinnur að undirbúningi þessa og miðar vel.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú hefur minna að gera í dag en þú bjóst við en forðastu að sitja auðum höndum. Reyndu að vera duglegur og klára það sem þú þarft að klára.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þetta er rólegur dagur og þú getur notað hann til að safna kröftum fyrir verkefni sem bíður þín í vinnunni.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Forðastu að vera uppstökkur því að það mun hafa neikvæð áhrif á fólkið í kringum þig. Gefðu þér tíma til að slappa aðeins af.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Samkvæmi sem þú ferð í verður þér og fleirum eftirminnilegt. Þar kynnist þú mjög áhugaverðum manneskjum.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú gerir einhverjum greiða sem þiggjandinn kætist mjög yfir. Hann á eftir að launa þér greiðann ríkulega þó að síðar verði.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Dagurinn verður rólegur og það er gott andrúmsloft í kringum þig. Hópvinna gengur vel og þú kannt vel við þig í stórum hópi.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þó að þú sért ekki alveg viss um að það sem þú ert að gera sé rétt verður það sem þú velur þér til góðs þegar til lengri tíma er litið.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Kunningjar hittast og gera sér glaðan dag. Ekki er ólíklegt að um sé að ræða nemendamót hjá einhverjum og þarfnast það heilmikillar skipulagningar.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Eitthvað verður til að gleðja þig sérstaklega. Að öllum líkindum er það velgengni einhvers þér nákomins.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)
Þér kann að leiðast eitthvað sem þú telur þó að nauðsynlegt sé að koma frá þér. Ekki gera neitt vanhugsað.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þér berast fregnir af persónu sem ekki hefur látið heyra í sér lengi. Notaðu daginn til að slaka á því að kvöldið mun verða einkar fjörugt.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Ef allir standa saman er auðvelt að fást við þau verkefni sem leysa þarf. Þér finnst einhver vera að svíkjast um.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Nú er gott að byggja á reynslu sem þú hefur í að skilja vanda annarra. Með því móti getur þú orðið vinum þínum að góðu liði.