
Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ef þú ert að fást við eitthvað sem þarfnast sérfræðiþekkingar er réttast að leita ráðlegginga hjá þeim sem eru vel að sér.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú ættir að skipuleggja daginn mjög vel með tilliti til stefnumóta og tímasetninga.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Upp kemur vandamál sem þú verður að leysa eins fljótt og auðið er og þá muntu fljótlega gleyma því. Varastu allt kæruleysi.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Tilfinningamál verða í brennidepli. Þú skalt halda þig utan við þau ef þau snúa ekki að þér beint. Kvöldið verður ánægjulegt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þú gleðst innilega þegar þú uppgötvar að eitthvað sem þú óttaðist var ástæðulaust. Þú ert óþarflega svartsýnn um þessar mundir.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Sinntu öldruðum ættingja, hann þarfnast þín virkilega. Eitthvað sem virðist mjög flókið í fyrstu reynist mun auðveldara viðfangs þegar til kastanna kemur.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Ekki er allt gull sem glóir. Farðu varlega í viðskiptum og leitaðu til sérfróðra manna er þú hyggur á meiri háttar viðskipti.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Það lítur út fyrir að einhver sé að tala illa um þig en ef þú hefur öll þín mál á hreinu þarft þú ekkert að óttast. Sennilega stafar þessi óvild eingöngu af öfund.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Sjálfstraust þitt er óvenjumikið. Þú átt líka mikilli velgengni að fagna og ef þú ert í prófum mun þér ganga vel.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Dagurinn verður rólegur og í kringum þig er gott andrúmsloft. Hópvinna gengur vel og þú kannt vel við þig í stórum hópi.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú vinnur vel, sérstaklega í samvinnu við aðra, og ætti það að skila umtalsverðum árangri. Kvöldið verður sérstaklega skemmtilegt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Varastu að trúa orðrómi sem þú heyrir um aðra. Dagurinn einkennist af togstreitu milli aðila sem þú umgengst mikið.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Ef þú hyggur á fjárfestingu skaltu fara rólega í sakirnar og vera viss um að allir séu heiðarlegir.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Fyrri hluti dagsins verður fremur rólegur hjá þér og þú kemur ekki miklu í verk. Kvöldið verður skemmtilegt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú þarft á því að halda að hvíla þig og slappa af. Það væri góð hugmynd að skreppa í ferðalag. Þú munt koma endurnærður og kátur til baka.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú færð ný tækifæri og fjármálin eru á uppleið hjá þér. Bráðlega munu þau standa betur en þau hafa gert lengi.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þér líður best með fólki sem þú þekkir vel. Þú átt í einhverjum erfiðleikum með samskipti við þá sem þú þekkir ekki.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Þér verður boðið tækifæri sem þú átt erfitt með að neita en gerir þér þó ekki almennilega grein fyrir.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Í kringum þig er óþolinmótt fólk sem ætlast til mikils af þér. Haltu þínu striki. Ferðalag gæti verið á döfinni.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Fjölskyldulífið á hug þinn allan og þú skipuleggur breytingar innan veggja heimilisins með fjölskyldunni. Félagslífið tekur mikið af tíma þínum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Þér gengur vel að tala við fólk í dag einkum þá sem þú þekkir ekki. Þú finnur lausn á vandamáli innan fjölskyldunnar.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Þú þarft að fara varlega í fjármálum og forðast alla óhóflega eyðslu. Ef þú ert sniðugur getur þú loksins látið gamlan draum rætast.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Ekki er víst að þú hafir rétt fyrir þér í deilu sem þú tekur þátt í. Þá er bara að viðurkenna mistökin.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Sjálfstraust þitt er með besta móti og þér gengur vel við allt sem þú tekur þér fyrir hendur. Gættu þess þó að ofmetnast ekki og sýna öðru fólki hroka.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þér standa til boða góð tækifæri og þú þarft kannski að neita þér um að hitta félagana til að koma málunum á hreint.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Fyrri hluti dagsins verður óvenjulegur og skemmtilegur. Þú ert í góðu skapi og fullur atorku. Þú ættir að fara í heimsókn í kvöld.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Í dag gefst gott tækifæri til að kynnast ýmsum nýjungum og færa sig yfir á annan vettvang. Ekki vera of fljótur að taka ákvarðanir.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú hefur óþarfar áhyggjur sem þú lætur draga þig niður. Bjartari horfur eru fram undan hjá þér en hefur verið lengi.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Ímyndunarafl þitt er frjótt í dag og þú ættir að nýta þér það sem best. Þú þarft að treysta á sjálfan þig.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Reyndu að gera þér grein fyrir stöðu mála áður en þú gengur frá mikilvægum samningum. Vinir hittast og gleðjast saman.