Ástarávísanir í pakkann 20. desember 2004 00:01
Ástarávísanir, útfylltar og óútfylltar, fyrir bæði kynin er sniðug jólagjöf sem fæst í Pennanum Eymundson og víðar. Þar er að finna ávísun upp á rómantísk kvöld, skemmtilega ferð og uppáhaldsmat svo eitthvað sé nefnt. Þessi bók með ávísunum heitir Ást í verki og er gefin út í samvinnu við Banka ástarinnar. Hún hefur að geyma 24 ástarávísanir sem ástvinur getur leyst út hvar og hvenær sem hann vill. Myndskreytingar í bókinni eru eftir Kim Casali sem skrifaði forðum ástarkveðju til elskunnar sinnar í formi mynda og texta sem síðar urðu heimsfræg. Það eru að sjálfsögðu það sem kallast á íslensku Ást er-myndirnar. Bókin kostar 950 krónur og er framleiðandi hennar Punkturinn yfir i-ið.
Jól Mest lesið Íslenskir jólaveinar frá Kína Jól Hægelduð kalkúnabringa með salvíu- og steinseljuhjúp Jól Engin jól án dönsku eplakökunnar Jól Hátíðlegar arabískar kræsingar Jól Bjart er yfir Betlehem Jól Aðventan boðar komu jólanna Jól Kerti seldust vel Jól Skreytir húsið með 600 jólasveinum Jól Dóttirin hannaði merkimiðana Jól Svona skreyti ég tréð í ár Jól