Innlent

Lagði hald á 4 tonn af marijúana

Fíkniefnalögreglan í Mexíkó lagði á mánudaginn hald á meira en fjögur tonn af marijúana sem falin voru í stórum tankbíl sem var á leiðinni til Bandaríkjanna. Efnið fannst eftir að lögregla hafði stöðvað bílinn vegna þess að afturljósin á honum voru biluð. Við nánari athugun kom í ljós að inni í tanknum hafði verið komið fyrir átta hundruð pökkum með marijúana. Bílstjórinn og annar maður sem var með honum í bílnum voru báðir handteknir en ekki hefur enn verið upplýst hvert efnið átti að fara.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×