Stytting vinnutíma forgangsmál 11. maí 2005 00:01 Samkvæmt rannsókn Evrópusambandsins vinna Norðmenn stysta vinnuviku í Evrópu eða 38,6 tíma á viku en Lettar þá lengstu eða 43,1 tíma á viku. Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá síðasta ári vinna Íslendingar 42 stundir á viku að meðaltali og væru því í þriðja sæti ef það hefði verið með í könnuninni, á eftir Bretum sem vinna 43,1 stund á viku. Rúmenar kæmu næst á eftir Íslendingum en þeir vinna 41,8 stundir á viku samkvæmt könnun Evrópusambandsins. Ekki er að sökum að spyrja að Íslendingar vinna mest Norðurlandaþjóða og eru einir Norðurlandabúa um að vinna lengri vinnuviku en 40 stundir. Svíar eru þó nálægt því og vinna 39,9 stundir. Það sem er mest sláandi er hversu löng vinnuvika íslenskra karla er samanborið við vinnuviku karla í Evrópusambandslöndunum. Meðan Íslenskir karlmenn vinna 47,1 klukkutíma að meðaltali á viku, vinna karlar í Evrópusambandslöndunum 41 klukkutíma á viku en inni í því meðaltali eru öll nýju aðildarríki Evrópusambandsins en vinnuvika er yfirleitt lengri í jaðarríkjum sambandsins en í "gömlu" ríkjunum. Tölurnar frá Evrópusambandskönnuninni ná þó eingöngu til þeirra sem eru ráðnir í fullt starf meðan rannsókn Hagstofu Íslands nær til alls vinnumarkaðarins. Gera má ráð fyrir að mikill meirihluti karla sé þó í fullu starfi en erfiðara er að bera íslensku tölurnar um vinnutíma íslenskra kvenna, sem er 35,9 klukkutímar á viku, saman við vinnutíma kvenna í rannsókninni. Eftir stendur gríðarlegur munur á vinnutíma karla og kvenna. Hafa ber einnig í huga að um meðaltalstölur er að ræða sem segir að talsvert stór hluti karla vinnur meira en 50 tíma á viku og jafnvel miklu meira en það. Hvaða tíma hafa þessir menn til þess að rækta fjölskyldur sínar, mynda tengsl og rækta börn sín og sinna umgengnisrétti sínum og skyldum við börn sín sem búa annars staðar eins og svo algengt er? Hver er staða karlmanna sem vinna meira en 50 tíma á viku til að ganga til verka til móts við konur sínar á heimilum? Og hvernig fara þeir að því að rækta sjálfa sig og sinna vinum og stórfjölskyldu? Vissulega eru margir svo lánsamir að vinna þeirra er ekki bara áhugamál þeirra heldur jafnvel ástríða og þetta á örugglega við um marga þá sem vinna mest. Það breytir því þó ekki að tími til að sinna öðrum þeim verkefnum sem tilheyra því hlutverki að vera maður, fjölskyldumaður og þjóðfélagsþegn er lítill. Stytting vinnutíma, og þá einkum vinnutíma karlmanna ætti því að vera forgangsverkefni, bæði í verkalýðshreyfingunni og hjá hverjum og einum, ekki síst þeim sem vilja taka ábyrgð á því stórverkefni, sem langflestir taka sér á hendur, að eignast börn og koma þeim svo til manns. Íslendingar státa sig stundum af því að vera framarlega í jafnréttismálum. Ýmislegt bendir þó til þess að hér séum við aftar á merinni á þessu sviði en þau lönd sem við helst berum okkur saman við. Til dæmis vinna íslenskir karlmenn miklu lengri vinnudag en karlmenn í Evrópusambandslöndunum og 11,2 klukkutímum lengur að meðaltali en íslenskar konur. Þetta kemur í ljós þegar tölur um vinnuviku Íslendinga frá Hagstofu Íslands eru bornar saman við nýja vinnumarkaðskönnun Evrópusambandsins sem nær til 25 Evrópuríkja. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Steinunn Stefánsdóttir Mest lesið Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun
Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir Skoðun
Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson Skoðun
Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir Skoðun
Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir Skoðun