Innlent

Heilsan betri en útlitið

Viktor Júsjenko, forseti Úkraínu, er við mjög góða heilsu segir læknir hans, Jean Saurat, við háskólasjúkrahúsið í Genf þar sem Júsjenko hefur leitað lækninga vegna díoxíneitrunar. Eitrað var fyrir Júsjenko með díoxíni í kosningabaráttunni fyrir úkraínsku forsetakosningarnar. Hann kennir þáverandi öryggislögreglu um eitrunina en því neita yfirmenn hennar. Eitrunin hafði þau áhrif að andlit hans er allt í útbrotum. Saurat læknir segir að útlitið sé ekki í neinu samræmi við heilsu forsetans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×