Sport

U17 tapaði fyrir Noregi í dag

U17 landslið Íslands í knattspyrnu karla lenti í neðsta sæti síns riðils á Norðurlandamótinu. Það tapaði 1-0 fyrir Noregi á Kaplakrikavelli í dag. Íslensku strákarnir töpuðu þar með öllum þremur leikjum sínum í riðlinum, skoruðu ekkert mark en fengu sjö á sig. Ísland leikur um sæti í mótinu við Finnland á Varmárvelli klukkan 11 á sunnudag og verður það síðasti leikur þeirra á mótinu. Írland vann Danmörku 3-1 í dag og sigraði í A-riðli, þeir leika úrslitaleik gegn Englandi sem hafnaði í efsta sæti B-riðils klukkan 14 á sunnudag en sá leikur verður á Laugardalsvellinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×