Sport

Nakata til Bolton

Japanski knattspyrnumaðurinn Hidetoshi Nakata hefur verið lánaður frá Fiorentina á Ítalíu til enska úrvalsdeildarliðsins Bolton. Hinn 28 ára gamli Nakata hefur um árabil verið fremsti knattspyrnumaður Japana og hefur komið víða við á sínum ferli. Hann hefur með hinum ýmsu liðum á Ítalíu síðastliðinn sex ár og segir Sam Allardyce, stjóri Bolton, að þessi víðtæka reynsla hans eigi eftir að koma liðinu til góða í baráttunni í vetur. "Nakata er ótrúlega spennandi leikmaður sem getur gert töfrabrögð með boltann. Hann mun styrkja breiddina á miðju okkar til muna," segir Allardyce. Nakata sjálfur kveðst ekki geta beðið eftir að reima á sig skóna á Englandi og bætti því við í samtali við fréttamenn í Englandi að það hefði verið draumur hans í langan tíma að leika á Englandi. "Þetta er gríðarlega mikilvægt tímabil fyrir mig og ég ætla að gera allt sem ég get til að hjálpa Bolton að enda í efri helmingi deildarinnar þegar uppi er staðið næsta vor," segir Nakata.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×