Sport

Byrjunarliðið gegn Suður Afríku

Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Suður-Afríku, en liðin mætast í vináttulandsleik á Laugardalsvelli í kvöld.  Leikkerfið er 4-5-1. Í markinu stendur Árni Gautur Arason. Hægri bakvörður er Kristján Örn Sigurðsson og vinstra megin er Indriði Sigurðsson.  Miðverðir eru Auðun Helgason og Stefán Gíslason. Á miðjunni eru Arnar Þór Viðarsson og Kári Árnason.  Tryggvi Guðmundsson leikur á vinstri kanti og Grétar Rafn Steinsson á þeim hægri. Fremstur á miðjunni er fyrirliðinn Eiður Smári Guðjohnsen, sem leikur aðeins fyrir aftan framherjann Heiðar Helguson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×