Sport

Dramatík á Akureyri

Norðfirðingurinn Jón Gunnar Eysteinsson jafnaði metin fyrir KA gegn Víkingum á síðustu mínútu á Akureyri í 1.deild karla í kvöld í leik sem lauk 1-1.  Mark Víkinga gerði Andri Steinn Birgisson á upphafsmínútum leiksins. Við þessi úrslit er það ljóst að Breiðablik er komið í úrvalsdeild. Fjölnir sigraði HK 3-1. Tómas Leifsson gerði tvö mörk fyrir Fjölni  og Atli Guðnason, fyrrum HK-ingur, launaði gömlu félögunum lambið gráa og gerði þriðja markið. Mark HK gerði Brynjar Víðisson úr vítaspyrnu. . Á Húsvaík sigruðu gestirnir í Þór lið Völsungs 3-1. Mörk Þórs gerðu Zeljko Gabrilovic tvö og Ibra Jagne eitt. Mark heimamanna gerði Andri Valur Ívarsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×