Sport

England spilar nýtt kerfi

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englands er að hugleiða að spila leikkerfið 4-5-1 á laugardaginn þegar Englendingar spila við Wales í undankeppni HM og það mun þýða að David Beckham verði stillt upp djúpum á miðjunni, fyrir aftan þá Frank Lampard og Steven Gerrard. Joe Cole og Shaun Wright-Phillips munu líklega verða á vængjunum og Wayne Rooney verði einn á toppnum í fjarveru Michael Owen sem er í leikbanni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×