Sport

Solskjær meiddist aftur

Norski knattspyrnumaðurinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því í morgun var tilkynnt að hann hefði meiðst á hné. Þetta er talið geta orðið til þess að markaskorarinn mikli neyðist til að ákveða að leggja skóna endanlega á hilluna. "Við bundum miklar vonir við endurkomu hans nú í október, en nú hefur komið í ljós að liðband í hnénu á honum er rifið, svo að nú er ómögulegt að segja til um framtíð hans," sagði læknirinn. Solskjær hefur ekki leikið með Manchester United síðan í maí í fyrra vegna erfiðra meiðsla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×