Sport

Sullivan framlengir um eitt ár

Neil Sullivan, markvörður enska 1. deildarliðsins Leeds United, hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár en fyrri samningur hans rennur út í vor. Sullivan kom frá Chelsea árið 2004 og hefur verið á milli stanganna hjá Leeds í 53 leikjum síðan þá. Meiðsli í læri hafa gert honum erfitt fyrir í haust og hefur hann spilað aðeins þrjá leiki. Einn íslenskur leikmaður er hjá Leeds, miðvallarleikmaðurinn Gylfi Einarsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×