Sport

Leiknir og Stjarnan í 1. deild

Leiknir og Stjarnan tryggðu sér í gær sæti í 1. deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Leiknir vann Njarðvík 3-2 og trónir á toppnum í 2. deild með 37 stig og hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Stjarnan tryggði einnig sæti sitt í 1. deild með 5-0 sigri á Leiftri/ Dalvík. Stjarnan í öðru sæti deildarinnar með 33 stig. Leiftur er í neðsta sæti með 11 stig og fallið í þriðju deild. Fjarðarbyggð lagði Huginn á útivelli 3-2, ÍR vann Selfoss 3-0 og Afturelding lagði Tindastól 2-0 á Sauðárkróki, en Tindastólsmenn sem verma næstneðsta sætið í deildinni berjast fyrir lífi sínu í lokaumferðinni ásamt ÍR-ingum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×