Sport

Naumur sigur Englendinga á Wales

Joe Cole leikmaður Chelsea tryggði Englendingum sigur á Wales, 0-1 í undankeppni HM 2006 í fótbolta í dag. Sigurmarkið kom á 54. mínútu en leikurinn fór fram í Cardiff. Með sigrinum komst England á topp riðilsins með 19 stig, einu stigi ofar en Pólverjar sem eru í 2. sæti þegar bæði liðin eiga þrjá leiki eftir.  Vonir Wales um að komast á HM2006 eru nú endanlega úr sögunni en liðið er í næst neðsta sæti með 2 stig. Norður Írar unnu Azerbaijan 2-0 í sama riðli en hvorugt liðið á möguleika að komast upp úr riðlinum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×