Sport

Brynjar B. aftur í byrjunarliðið

Landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Króatíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 18:05 í dag í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Nokkrar breytingar eru á byrjunarliðinu frá síðasta leik sem var gegn S.Afríku. Stillt er upp með leikskipulaginu 4-2-3-1, fjögurra manna varnarlínu og fyrir framan vörnina leika tveir djúpir tengiliðir.  Fyrir framan tengiliðina tvo er leikið með tvo kantmenn og sóknartengilið fyrir aftan framherjann. Byrjunarlið Íslands Markvörður:  Árni Gautur Arason. Hægri bakvörður:  Kristján Örn Sigurðsson. Vinstri bakvörður:  Indriði Sigurðsson Miðverðir:  Auðun Helgason og Hermann Hreiðarsson. Tengiliðir:  Brynjar Björn Gunnarsson og Stefán Gíslason. Hægri kantur:  Grétar Rafn Steinsson. Vinstri kantur:  Gylfi Einarsson. Sóknartengiliður:  Eiður Smári Guðjohnsen (fyrirliði). Framherji:  Heiðar Helguson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×