Sport

Guðjón fagnar 8 daga hvíld

Guðjón Þórðarson þjálfari Notts County segir í viðtali við BBC í dag að hann fagni mjög svo hvíldinni sem leikmenn hans fái í kringum landsleikjakrinuna. Notts County fær 8 daga hvíld eftir talsverða keyrslu í fyrstu umferðunum í ensku 2.deildinni þar sem liðið er efst. Leikurinn gegn Darlington á föstudaginn var fimmti leikur liðsins á síðustu 13 dögum og segir Guðjón að hvíldin gæti ekki hafa komið á betri tíma. "Það er gott að þessi törn er að baki. Nú höfum við heila viku til að undirbúa okkur fyrir leikinn gegn Chester og ég held að það hafi verið þörf á þessari hvíld. Hún kekmur á réttum tíma." sagði Guðjón sem var valinn knattspyrnustjóri ágústmánaðar í ensku 2. deildinni í vikunni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×