Sport

Hagnaður hjá Arsenal

Hagnaður á rekstri Arsenal á síðasta ári jókst um tæpar níu milljónir punda, en þetta kemur fram í ársskýrslu félagsins sem lögð var fram í morgun. Hagnaður félagsins jókst úr 10,6 milljónum punda í 19,3 milljónir á tímabilinu sem lauk í maí í vor. Þá var einnig tilkynnt að bygging nýja leikvangsins væri á áætlun og að bjartir tímar væru framundan í rekstri félagsins í kjölfar þess að hann verði tekinn í notkun á næsta ári.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×