Sport

Annasöm nótt hjá Paul Robinson

Landsliðsmarkverði Englendinga, Paul Robinson hjá Tottenham Hotspur, brá heldur betur í brún þegar hann kom til síns heima eftir landsleikinn gegn Wales um helgina, því í ljós kom að brotist hafði verið inn í íbúð hans á meðan hann var í burtu með landsliðinu. Robinson fékk því að sleppa æfingu með enska liðinu í morgun, því hann fékk lítinn svefn í nótt eftir að hafa verið í sambandi við lögregluna út af innbrotinu. Hann verður þó væntanlega tilbúinn í slaginn á miðvikudag þegar enska liðið mætir Norður-Írum í undankeppni HM.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×