Sport

Mourinho er ósáttur

Franski landsliðsmaðurinn Claude Makelele hjá Chelsea segir að Jose Mourinho sé ósáttur við leik liðsins í úrvalsdeildinni til þessa og segir liðið eiga langt í land með að ná því formi sem það var í undir lok síðustu leiktíðar. "Ég tek í sama streng. Við erum enn dálítið hikstandi, en ég veit að það er bara tímaspursmál hvenær við dettum í gírinn og þá mega líka hin liðin í deildinni vara sig. Við erum búnir að styrkja hópinn síðan í fyrra og við viljum sanna að titillinn í fyrra var engin tilviljun," sagði Makelele.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×