Sport

Campbell nálgast fyrra form

NordicPhotos/GettyImages
Varnarmaðurinn Sol Campell hjá Arsenal er nú í óðaönn að ná fyrra formi eftir erfið meiðsli og í kvöld spilar hann annan leikinn í röð með varaliði félagsins. Talið er að Arsene Wenger muni freistast til að velja hann í aðalliðið í framhaldinu, ef vel tekst til. Wenger hefur alla tíð sagt að hann muni hleypa Campbell rólega inn í byrjunarliðið, en fjarvera hans á síðasta tímabili var liðinu mikil blóðtaka. Arsenal á erfiðan leik við Middlesbrough fyrir höndum um helgina, en þar á eftir er leikur í Meistaradeildinni á dagskrá og margir veðja á að sá leikur verði fyrsti leikur Sol Campbell á tímabilinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×