Sport

Kerr og Keane rifust ekki

Brian Kerr, landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu, hefur þvertekið fyrir að hafa lent í rifrildi við Roy Keane eða nokkurn annan af leikmönnum írska liðsins, en í gær spurðist út að ólga væri innan írska hópsins. "Strákarnir fóru aðeins út á lífið og fengu sér drykk, það var allt og sumt. Þetta var löngu fyrir leik og ég sé ekkert athugavert við það að þeir fái sér einn eins og gengur. Hópurinn minn er agaður og æfir af krafti. Það eru engin rifrildi í mínum hóp - ég stunda ekki svoleiðis," sagði Kerr.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×