Sport

Young fetar í fótspor Neville

NordicPhotos/GettyImages
Luke Young, leikmaður Charlton, vill feta í fótspor Gary Neville með enska landsliðinu, en vill ekki gera sér of miklar vonir um að eiga sæti í enska landsliðinu ef það fer á HM í Þýskalandi næsta sumar. Young hefur tekið stöðu Neville sem hægri bakvörður enska liðsins eftir að sá síðarnefndi meiddist og þótti standa sig ágætlega í leiknum gegn Wales á dögunum. "Gary Neville er besti hægri bakvörður í ensku úrvalsdeildinni á síðustu átta árum eða svo og það er verðugt verkefni að reyna að feta í fótspor manns sem hefur verið þetta stöðugur," sagði Young.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×