Sport

Bonhof íhugar að segja af sér

Ranier Bonhof , þjálfari U-21 árs liðs Skota, hefur látið í veðri vaka að hann muni segja af sér á næstu dögum í kjölfar neyðarlegs atviks í leik liðsins við Ítali um síðustu helgi, þegar hann leyfði leikmanni að spila sem var í banni í leiknum. "Ég veit ekki hvort þetta er beint mér að kenna, en einhver verður að taka ábyrgð á þessu klúðri. Við skulum bíða fram á fimmtudag með stórar ákvarðanir, við eigum mikilvægan leik fyrir höndum á miðvikudag og getum ekki annað en einbeitt okkur að því verkefni sem stendur, en eftir það munum við væntanlega skoða þessi mál," sagði Bonhof.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×