Sport

Tvær breytingar hjá Eyjólfi

Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs landsliðs Íslands hefur gert tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum við Króatíu á KR-vellinum á dögunum, en strákarnir mæta Búlgaríu í Sofíu í dag klukkan 14 að íslenskum tíma. Garðar Gunnlaugsson og Andri Ólafsson koma inn í byrjunarlið íslenska liðsins í stað þeirra Steindórs Gíslasonar og Pálma Rafns Pálmasonar. Garðar tekur sér stöðu í framlínunni með Herði Sveinssyni og Andri fer inn á miðjuna. Jónas Guðni Sævarsson, sem lék á miðjunni gegn Króötum, verður færður í stöðu hægri bakvarðar í stað Steinþórs. Byrjunarlið Íslands Markvörður:  Ingvar Þór Kale Bakverðir:  Jónas Guðni Sævarsson og Gunnar Þór Gunnarsson. Miðverðir:  Tryggvi Sveinn Bjarnason og Sölvi Geir Ottesen Jónsson. Tengiliðir:  Davíð Þór Viðarsson (fyrirliði) og Andri Ólafsson. Kantmenn:  Sigmundur Kristjánsson og Emil Hallfreðsson. Framherjar:  Hörður Sveinsson og Garðar Gunnlaugsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×