Sport

Beckham varar við vanmati

David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins, hefur varað félaga sína við því að vanmeta Norður-Íra, en liðin mætast í undankeppni HM annað kvöld. Enska liðið vann auðveldan 4-0 sigur í fyrri leik liðanna, en Beckham segir leikinn hafa verið erfiðan. "Leikurinn var mun jafnari en tölurnar gáfu til kynna og ég man að það var mjög erfitt að brjóta írska liðið á bak aftur. Allt getur gerst í fótbolta og því vil ég vara menn við því að halda að þetta verði eitthvað auðvelt verkefni," sagði Beckham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×