Sport

Reynir og Sindri í aðra deild

Reynir Sandgerði og Sindri frá Höfn í Hornafirði tryggðu sér í gærkvöld sæti í annari deild karla í knattspyrnu að ári eftir síðari leikina í umspili. Reynir lagði Gróttu 1-4 á Seltjarnarnesi og vann því samanlagt 8-6 og Sindramenn lögðu andstæðinga sína að austan, Leikni frá Fáskrúðsfirði 1-0 á útivelli og eru því komnir upp um deild. Fyrri leik liðanna lauk með 0-0 jafntefli á Höfn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×