Sport

Benitez framherjavanda

Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, er kominn í gamalkunn vandræði með lið sitt fyrir leikinn við Tottenham Hotspur á laugardaginn. Mikil meiðsli eru á meðal framherja liðsins, en aðeins tíminn mun leiða í ljós hvort Benitez mun ná að stilla upp tveimur heilum framherjum í leiknum. Benitez bíður nú milli vonar og ótta eftir tíðindum af meiðslum spænska framherjans Fernando Morientes, sem meiddist á læri á æfingu með landsliði sínu í gær. Djibril Cisse á við ökklameiðsli að stríða og er tæpur fyrir landsleik Frakka og Íra í kvöld og þá er Peter Crouch enn ekki kominn á stað eftir að hafa verið frá síðan á undirbúningstímabilinu. Þetta gæti þýtt að Florent Sinama-Pongolle verði eini heili framherjinn sem Benitez hefur úr að moða á laugardaginn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×