Sport

Eiður Smári misnotaði dauðafæri

Eiður Smári Guðjohnsen fór illa að ráði sínu nú rétt áðan, þegar hann misnotaði sannkallað dauðafæri fyrir framan mark Búlgara. Hann fékk góða sendingu fyrir markið frá hægri frá Heiðari Helgusyni, en skaut yfir markið. Íslenska liðið hefur byrjað leikinn mjög vel, en þó verður að segjast að heimamenn virka ansi daufir í dálkinn og eru langt frá sínu besta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×