Sport

Mexikó tryggði sér sæti á HM

Landslið Mexikó tryggði sér í gærkvöld sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, þegar liðið burstaði Panama með fimm mörkum gegn engu. Mexíkó og Bandaríkin sitja nú á toppi Ameríkuriðilsins með nítján stig og eru örugg á HM. Mexíkó þurfti aðeins stig til að tryggja sig áfram, en þeir komust yfir á 30. mínútu með marki frá Luis Perez. Í síðari hálfleik skoruðu svo Rafael Marquez, Jered Borgetti, Frincisco Fonseca og Pavel Pardo og tryggðu öruggan sigur. Tveimur leikmönnum Panama var loks vísað af velli á síðasta stundarfjórðungi leiksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×