Sport

Tímabil Newcastle byrjar núna

NordicPhotos/GettyImages
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, hefur lýst því yfir að nýtt upphaf fari í hönd hjá félaginu um helgina með tilkomu Michael Owen og segist veðja á að Owen verði markakóngur í ensku úrvalsdeildinni í ár. Newcastle hefur byrjað leiktíðina afar illa og er í næst neðsta sæti deildarinnar með eitt stig eftir fjóra leiki. Liðinu hefur auk þess enn ekki tekist að skora mark og það er einmitt þessvegna sem liðið bindur svo miklar vonir við komu Michael Owen. "Owen var fenginn hingað af stjórninni til að skora mörk og það kæmi mér ekkert á óvart þó hann yrði markakóngur deildarinnar þegar upp verður staðið. Ég hefði sjálfur persónulega ekkert á móti því þó hann skoraði öll mörkin fyrir okkur," sagði Shearer, sem sjálfur er mikill markahrókur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×