Sport

Boa Morte samdi við Fulham

Portúgalski landsliðsmaðurinn Luis Boa Morte hefur skrifað undir nýjan samning við Fulham, sem gildir til ársins 2010, en í honum er ákvæði sem á að hindra að önnur félög geti lokkað hann í burtu. "Luis er búinn að vera hjá okkur í fimm ár og vildi ólmur vera lengur. Það eru engin ákvæði í samningi hans sem segja að hann geti stokkið héðan í burtu ef tilboð berst í hann, enda ætlum við ekki að stunda það að selja bestu leikmennina okkar," sagði Chris Coleman, knattspurnustjóri Fulham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×