Sport

Guðjón biður um stuðning áhorfenda

Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, biður stuðningsmenn liðsins að fjölmenna á völlinn á morgun þegar topplið hans mætir lærisveinum Keith Curle í Chester City. "Það er alltaf gott að koma aftur á heimavöllinn þegar liðinu hefur gengið svona vel þar," sagði Guðjón, en Notts County er með fullt hús stiga eftir þrjá fyrstu heimaleiki sína og tekur á morgun á móti Chester, sem hefur einnig byrjað leiktíðina nokkuð vel. "Ég fer alltaf fram á það af stuðningsmönnum liðsins að þeir mæti á heimaleikina og láti vel í sér heyra, svo þeir virki eins og tólfti maðurinn fyrir okkur inni á vellinum," sagði Guðjón á heimasíðu félagsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×