Sport

Thierry Henry meiddur

Franski markahrókurinn Thierry Henry mun ekki jafna markamet Ian Wright hjá Arsenal á morgun, því hann er meiddur á nára og missir því af leik liðsins við Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni. Henry meiddist í landsleik Frakka og Íra í vikunni, en verður þó ekki lengi frá og Arsene Wenger gerir ráð fyrir að hann verði klár í slaginn í Meistaradeildinni í næstu viku. Þá er gert ráð fyrir að Freddie Ljungberg verði hvíldur á morgun, en hann var á fullu með sænska landsliðinu í vikunni. Líklegur hópur Arsenal: Lehmann, Almunia, Poom, Lauren, Eboue, Cole, Clichy, Toure, Cygan, Senderos, Gilberto, Flamini, Fabregas, Song, Pires, van Persie, Hleb, Bergkamp, Reyes.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×