Sport

Pearce óttast ekki grannaslaginn

NordicPhotos/GettyImages
Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, segist ekki hafa neinar áhyggjur af grannaslagnum við United á Old Trafford á morgun, en þar hefur City ekki sigrað í meira en þrjá áratugi. Manchester City hefur þó verið á mjög góðu skriði undanfarið og er taplaust í þrettán deildarleikjum í röð. Pearce segir sína menn ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að stríða stóra bróður sínum í Manchester. "Það er stórt verkefni fyrir hvaða lið sem er að fara á Old Trafford, en ég óttast það ekki. Strákarnir mínir eru fullir sjálfstrausts eftir gott gengi undanfarið og við förum svo sannarlega ekki í þennan leik til að ná jafntefli - við ætlum að vinna," sagði Pearce, sem hefur náð frábærum árangri með liðið síðan hann tók við því.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×