Sport

Ætlum að vinna tvöfalt

Þóra Helgadóttir, fyrirliði og markvörður Breiðabliks, kom til Breiðabliks fyrir tímabilið en hún hóf feril sinn hjá félaginu. "Þetta sumar er búið að vera virkilega skemmtilegt og það er líka gaman fyrir mig að snúa aftur í mitt gamla félag á uppgangstímum. Það heldur ekkert félag á Íslandi betur utan um knattspyrnu kvenna en Breiðablik og það eru margar efnilegar stelpur í yngri flokkunum sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða á næstu árum. Við stelpurnar í liðinu verðum ekki sáttar ef okkur tekst ekki að vinna tvöfalt í sumar, þar sem við tryggðum okkur Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. KR hefur verið okkar erfiðasti andstæðingur í sumar og það er mikilvægt fyrir okkar að sýna það og sanna að við erum með besta liðið. Ég á von á því að leikmenn KR muni berjast af fullum krafti frá upphafi til enda og við verðum að vera duglegar allan tímann ef við ætlum að vinna."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×