Sport

Breiðablik komið yfir

Blikastúlkur voru rétt í þessu að komast yfir 2-1 gegn KR í bikarúrslitaleik kvenna á Laugardalsvelli. KR stúlkur komust í 1-0 eftir aðeins fimm mínútna leik, en Blikastúlkur komust yfir 2-1 í blálokin á hálfleiknum. Það var Ásgerður Ingibergsdóttir sem kom KR yfir á 5. mínútu leiksins, en Gréta Mjöll Samúelsdóttir jafnaði fyrir Blika 20 mínútum síðar. Það var svo bandaríska stúlkan Casey McCluskey sem kom Blikum yfir á lokasekúndum hálfleiksins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×